Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

almannatryggingar.

124. mál
[16:18]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég flyt hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, um aldurstengda örorkuuppbót. Flutningsmenn auk mín eru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

Í 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Á eftir 1. mgr. 21. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Þegar réttur til örorkulífeyris fellur niður og taka ellilífeyris hefst skal réttur til aldurstengdrar örorkuuppbótar haldast óbreyttur.“

Í 2. gr. segir:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Frumvarpið var áður lagt fram á 150. og 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Á 151. löggjafarþingi bárust umsagnir um frumvarpið frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Öryrkjabandalagi Íslands og Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Umsagnaraðilar lýstu allir yfir stuðningi við frumvarpið. Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt.

Þegar örorkulífeyrisþegi verður 67 ára, þ.e. nær þeim aldri þegar réttur til töku ellilífeyris myndast, fellur niður réttur hans til aldurstengdrar örorkuuppbótar. Við þetta tímamark skerðast greiðslur viðkomandi um þá upphæð sem nemur aldurstengdri örorkuuppbót hans. Sú upphæð er í dag um 52.600 kr. Eftir skatta eru þetta um 35.000 kr. og þar af leiðandi ekki mjög há upphæð en skiptir þessa einstaklinga gífurlega miklu máli. Þessi skerðing hefur mikil áhrif á ráðstöfunartekjur öryrkja og er þeim verulega íþyngjandi. Rökin fyrir því að greiða aldurstengda örorkuuppbót eru þau að aflahæfi viðkomandi skerðist til lengri tíma allt eftir því hve ungur hann er þegar hann er metinn til 75% örorku. Þau rök eiga við óháð því hvort viðkomandi er 66 eða 67 ára, enda er það svo að með sífellt bættum læknavísindum hefur aflahæfi fólks aukist vel fram yfir 67 ára aldur. Þeir sem eru vinnufærir geta nýtt sér úrræði laganna til töku hálfs lífeyris eða nýtt sér frítekjumörk ellilífeyris en þeir sem eru óvinnufærir njóta þá engra slíkra úrræða. Því á hin aldurstengda örorkuuppbót ekki að falla niður við upphaf töku ellilífeyris. Þarna eigum við að passa upp á jafnrétti og gæta þess að allir séu jafnir fyrir lögum.

Það óskar sér þess enginn að verða öryrki, að fæðast fatlaður eða þannig að viðkomandi verður öryrki fyrir lífstíð og það er ekki ástæða til að seinna meir, við 67 ára aldur, verði viðkomandi einstaklingi refsað. Það er áfall fyrir þessa einstaklinga að þurfa að berjast við fötlun sína og sérstaklega í því tilfelli þegar þeir þurfa að fara að berjast við kerfið líka sem hefur því miður ekki auðveldað þeim lífið í mörgum tilfellum.

Við skulum átta okkur á því að í 21. gr. almannatryggingalaga um aldurstengda örorku segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Aldurstengd örorkuuppbót greiðist þeim sem fá greiddan örorkulífeyri skv. 18. gr. eða fullan örorkulífeyri [samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga]. Aldurstengd örorkuuppbót greiðist einnig þeim sem fá greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. [Um uppbótina gilda ákvæði 1. mgr., sbr. 2. mgr., 2. málsl. 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. um búsetutíma, örorkumat og skerðingu vegna tekna.] Fjárhæð uppbótar, sbr. 2. mgr., miðast við þann aldur sem einstaklingur var í fyrsta sinn metinn 75% öryrki skv. 1. og 2. mgr. 18. gr. [eða lögum um slysatryggingar almannatrygginga] eða uppfyllir skilyrði 7. gr. laga um félagslega aðstoð.“

Hver í ósköpunum skildi hvað ég var að segja? Hvernig í ósköpunum eiga þessir einstaklingar, veikir, að skilja svona mál? Þetta sýnir svart á hvítu hversu fáránlegt almannatryggingakerfið er orðið, hversu gífurlega bútasaumað skrímsli það er. Ég fer með þessa runu til þess eins að sýna fram á hversu fáránleg lagasetningin öll er orðin: „Um uppbótina gilda ákvæði 1. mgr., sbr. 2. mgr., 2. málsl. 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. …“. Það er með ólíkindum hvernig þetta er sett upp.

En svo segir:

„Fjárhæð mánaðarlegrar aldurstengdrar örorkuuppbótar, sbr. 1. mgr., skal vera hlutfall af óskertum mánaðarlegum örorkulífeyri skv. 18. gr. og miðast við fæðingardag, sbr. eftirfarandi …“.

Málið er ekki svona einfalt. Í dag eru þetta 52.631 kr. á mánuði og það er greitt frá 18 ára aldri. Síðan fer þetta stiglækkandi og þegar einstaklingur verður öryrki, segjum við 66 ára aldur, fær hann 1.316 kr. Þetta fer stighækkandi frá 18 ára aldri upp í 66 ára aldur eftir því hvenær viðkomandi fer inn á örorku. Því miður, eins og ég sagði, virðist eins og að þegar fólk er orðið 67 ára þá sé það eiginlega orðið heilbrigt í boði ríkisins. Þá hættir viðkomandi að vera öryrki. Hvernig í ósköpunum getur ríkið ákveðið að viðkomandi, sem er búinn að vera á örorkubótum alla sína ævi, vegna sinnar fötlunar, verði bara ellilífeyrisþegi þegar hann er orðinn 67 ára? Örorkan sem viðkomandi bjó við, líkamlega tjónið sem metið var til örorku, á hreinlega að hverfa.

Ef þessi einstaklingur, sem er 18 ára gamall, hefur þörf á því að fá þessa upphæð, 52.631 kr., sem er um 35.000 kr. eftir skatt, þetta er lág upphæð og við vitum að hann þarf örugglega mun meira — ef hann hafði þörf fyrir þetta 18 ára gamall er engin spurning að hann hefur enn meiri þörf á því að fá þessa fjárhæð þegar hann verður 67 ára og fer á ellilífeyri. Við vitum öll að því eldri sem við verðum því verri verða þau mein sem hafa valdið því að við erum komin á örorku.

Þessi hópur hefur líka lent í þeirri kvöl sem kjaragliðnun hefur valdið og farið illa út úr því að fá ekki þær hækkanir. Hvað þá launaskrið, það er eitthvað sem er ekki í boði fyrir þennan hóp. Þar af leiðandi hefur hann líka að stærstum hluta setið eftir vegna Covid-málanna, hann var ekki inni í þeim pökkum sem þar voru. Við eigum að sjá sóma okkar í því að sjá til þess að þessir einstaklingar sem, eins og ég sagði í upphafi, hafa minnsta möguleika á því að afla sér tekna og hafa lífeyrissjóð — við eigum að hugsa til þess að þetta er þeirra lífeyrissjóður. Þetta er ekki há upphæð og hún er mjög sanngjörn. Hún mætti þess vegna vera hærri en við getum byrjað þarna. Þetta eru lágar upphæðir. Ef rétt væri þyrfti fólk, þegar það er 67 ára, þegar það er komið á þann aldur, eiginlega að fá meira út frá sinni hreyfihömlun og fötlun. Það er engin spurning að þau þurfa á meiru að halda við þetta aldursmark en minna.

Ég vona heitt og innilega að ég þurfi ekki að flytja þetta mál eina ferðina enn. Ég vísa málinu, þegar hef ég lokið máli mínu, til velferðarnefndar og ég vona heitt og innilega að við séum komin á þann stað að við sjáum að við þurfum að taka á þessum hópi líka, sem við þurfum auðvitað að gera. Endurskoðun almannatryggingalaga hefur komið til umræðu. Ég hef tekið þátt í þeirri endurskoðun í Péturs Blöndals nefndinni og í síðustu nefnd. En því miður er alltaf farin röng leið í þeirri endurskoðun. Við verðum að átta okkur á því að við höfum fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra og þurfum að lögfesta hann. Ef við lögfestum hann ber okkur skylda til að hafa þá sem málið varðar með okkur í liði og sjá til þess að þeir komi að því að endurskoða almannatryggingakerfið. Þetta eru aðilarnir sem eiga að lifa í kerfinu. Þar af leiðandi þurfa hagsmunasamtök öryrkja, Öryrkjabandalagið, Þroskahjálp, Sjálfsbjörg og önnur félög, að fá sæti við borðið. Þar á að byrja. Byrjum þar, byrjum á grunninum, byrjum að semja og setjast niður og tala á jafnræðisgrunni. Eins og Öryrkjabandalagið segir og hefur verið þeirra kjörorð: Ekkert um okkur án okkar. Þar eigum við að byrja vegferð okkar í endurskoðun almannatryggingalaganna. Þá mun okkur farnast vel.

Á síðasta þingi, þegar ég flutti þetta frumvarp, sendi Öryrkjabandalag Íslands inn umsögn. Með leyfi forseta, segir þar orðrétt:

„ÖBÍ lýsir yfir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og sem felur í sér að réttur til aldurstengdrar örorkuuppbótar haldist óbreyttur þegar réttur til örorkulífeyris fellur niður og taka ellilífeyris hefst. Samkvæmt núgildandi lögum missa örorkulífeyrisþegar aldurstengdu örorkuuppbótina við 67 ára aldur. Breytingin myndi bæta stöðu fatlaðs og langveiks fólks sem vegna veikinda, slysa eða fötlunar nær ekki að ávinna sér lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum og eftirlaunaréttindi þeirra úr lífeyrissjóðakerfinu því mjög takmörkuð eða jafnvel engin. Á slíkt sérstaklega við um einstaklinga sem fá örorkumat ungir að árum. Þessir einstaklingar fá almennt mjög lá eða jafnvel engin eftirlaun frá lífeyrissjóðum.

Ljóst er að sá hópur ellilífeyrisþega sem fyrir 67 ára aldur þurfti að framfleyta sér á örorkulífeyri og/eða var um lengri tíma utan vinnumarkaðar, er almennt með mun lægri tekjur og í mun erfiðari fjárhagsstöðu en aðrir ellilífeyrisþegar. Þetta er sá hópur ellilífeyrisþega sem stendur verst.

Örorkulífeyrisþegar hafa að auki ekki val um að fresta töku ellilífeyris til 72 ára aldurs eins og aðrir, og hækka þar með greiðslur sínar á mánuði um 0,5%, þar sem greiðslum til örorkulífeyrisþega er breytt án umsóknar úr örorkulífeyri í ellilífeyri við 67 ára aldur.“

Þetta eru hálfgerðir hreppaflutningar úr einu kerfi í annað, beint yfir í ellilífeyriskerfið og viðkomandi verður heilbrigt gamalmenni í boði ríkisins. Þetta þurfum við að stöðva. Við þurfum að sjá til þess að þetta sé ekki eitt af því sem þessir einstaklingar þurfa að glíma við.

Þroskahjálp sendi líka inn umsögn. Þar segir, með leyfi forseta:

„Aldurstengdri örorkuuppbót er m.a. ætlað að vera ígildi greiðslna úr lífeyrissjóði hjá þeim einstaklingum sem vegna fötlunar sinnar hafa ekki eða mjög takmarkað áunnið sér þau réttindi með þátttöku á vinnumarkaði.

Almennt er talið að eftirlaun fólks eigi að standa á þremur stoðum, þ.e. greiðslur almannatrygginga, greiðslur úr lífeyrissjóði og frjáls lífeyrissparnaður einstaklinga.

Hjá einstaklingi sem hefur stærstan hluta af starfsævi sinni verið utan vinnumarkaðar vegna örorku eru mestar líkur á að tvær af þessum stoðum séu ekki eða mjög lítið til staðar. Þess vegna þarf stuðningur almannatrygginga að vera meiri við þá einstaklinga. Það er því órökrétt og mjög ósanngjarnt að skerða bætur almannatrygginga gagnvart þeim hópi fólks, eins og nú er gert.

Með vísan til þess sem að framan segir mæla Landssamtökin Þroskahjálp eindregið með að frumvarpið verði samþykkt.“

Að síðustu vísa ég í bréf frá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Þegar öryrkjar verða 67 ára fara þeir sjálfkrafa af örorkubótum á ellilífeyri, og þá fellur umrædd uppbót niður skv. gildandi lögum. Hún getur hæst orðið jafnhá örorkulífeyrinum, nú 48.100 kr./mán., hjá þeim sem voru metnir 75% öryrkjar á unga aldri, en verður þeim mun lægri sem það gerðist við hærri aldur. Hjá þeim sem varð 75% öryrki fertugur er upphæðin nú 7.200 kr./mán.

Tilgangurinn með uppbótinni mun vera sá, að bæta öryrkjanum það upp að einhverju marki að hann hefur ekki átt sömu möguleika og aðrir til að bæta hag sinn með öflun tekna á lífsleiðinni, svo sem að koma sér upp eignum og lífeyrisréttindum.

Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni fær ekki séð að málefnaleg rök fyrir greiðslu uppbótarinnar falli niður við það að öryrkinn verði 67 ára og lýsir því yfir stuðningi við frumvarpið.“

Þetta segir okkur þá sögu að þarna úti er stuðningur við þetta frumvarp. Það eina sem við þurfum nú er stuðningur ríkisstjórnarinnar, að ríkisstjórnin sjái ljósið, sjái til þess að þessi hópur fái þessa uppbót áfram. Þetta er réttlætismál, þetta er sanngirnismál, þetta er jafnréttismál. Það sem mestu skiptir: Ef við værum búin að samþykkja lög um málefni fatlaðra væri þetta eitt af þeim málum sem pottþétt þyrfti að taka á og koma í lag. Ég vona því heitt og innilega að nú sé það í síðasta skipti sem ég þarf að mæla fyrir þessu máli, þessu réttlætismáli, þessu sanngirnismáli, sem á að vera sjálfsagt að fari í gegn.