Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Fyrst varðandi það hvort taka megi námsstyrkinn einan og sér eða hann dragist frá láninu — skildi ég þá spurningu rétt; hvort það mætti taka hann einan og sér (BjG: Án þess að taka lán.) — án þess að taka lán, þá átti svarið við því að vera játandi, að nemendur hefðu kost um það hvort þeir nýttu sér þetta úrræði eitt og sér eða saman eftir þörfum og aðstæðum.
Með því að miða við 45 mánuði var ætlunin að ná utan um fimm háskólaár. Það var ætlunin að ná utan um fimm ára tímabil, þ.e. BA- og BS-stig og meistarastig. Það er náttúrlega sjálfsagt að lengja þá í því marki ef það yrði óljóst hvort doktorsnám félli þarna undir eða ekki, en það var a.m.k. ekki ætlunin með þessu. Stóra breytingin og stóra hugsunin að baki er einmitt að við nálgumst stuðning við námsmenn út frá því að styðja við þá á meðan þeir eru í námi. Það eru margar fínar breytingar sem urðu með nýjum lögum um Menntasjóð námsmanna. En nú er útfærslan sú sem ég rakti í framsöguræðu minni, að þar er verið að horfa til þess hvernig fólk endurgreiðir lán sín að námi loknu. Við vitum það að íslenskir stúdentar eru lengur í námi en annars staðar, m.a. vegna þess að þeir vinna svo mikið. Þannig að svona stuðningur, að geta komið inn með styrk með þessum hætti, held ég að sé tvímælalaust til bóta og getur aldrei komið út á verri veg fyrir námsmann.