152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

Menntasjóður námsmanna.

175. mál
[17:07]
Horfa

Flm. (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna því að ég held að það verði að segjast eins og er að í þessum sal er allt of lítið rætt um háskólamenntun og þar af leiðandi um kjör stúdenta. Ég var búin að nefna það í framsöguræðu minni að annars vegar er um það að ræða að hér er verið að hækka grunnframfærslu, tryggja það í lögum að hún sé hin sama fyrir námsmenn og alla aðra í samfélaginu. Það hefur verið sterkt ákall eftir þessu í samfélaginu. Þar undir er húsnæðisliðurinn. Með því að tryggja að þetta sé varið í lögum þá erum við sannarlega að koma til móts við veruleika stúdenta. Hinn punkturinn er, og þarna er kannski skoðanaágreiningur, að af því þetta er félagslegur jöfnunarsjóður og af því að við viljum styðja við stúdenta þá fari vel á því og sé sterkt að gera það strax á meðan þeir eru í námi, gefa þeim færi á að velja að vera í námi, gefa þeim færi á að velja að vinna minna með námi. Það má vel vera að lengja þurfi í tímabilinu en hugmyndin var annars vegar þessi: Grunnframfærslan á þessu 45 mánaða tímabili. Hins vegar: Styrkur. Og já, hann er vissulega flatur á alla en þetta er styrkur sem stúdentar búa ekki við í dag sem síðan hækkar miðað við verðlag á ári hverju. Þannig að þetta eru breytingarnar tvær.

Það má vel vera að það sé skoðanamunur á því hvort styðja eigi við fólk þegar það er komið úr námi, á vinnumarkaðinn, eða hvort betur fari á því að gera það á meðan það er í námi. Ég er þeirrar skoðunar að það sé tímapunkturinn til þess. Síðan er auðvitað alls konar annar stuðningur fyrir hendi við doktorsnema. En þessar tvær greinar taka á þessum tveimur punktum. Ekkert annað í regluverkinu — það er ekki verið leggja til aðrar breytingar en þessar tvær sem í mínum huga eru báðar (Forseti hringir.) klárlega og skýrlega til að styðja við stúdenta mjög afdráttarlaust (Forseti hringir.) og á meðan á námi stendur.