152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

Menntasjóður námsmanna.

175. mál
[17:09]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir allt það sem hv. þingmaður sagði um þennan fyrri þátt frumvarpsins sem lýtur að grunnframfærslunni og lögfestingu hennar. Eins og ég útskýrði hér áðan þá sé ég ekki alveg að þetta frumvarp breyti miklu í grundvallaratriðum um það hvenær stuðningurinn kemur til vegna þess að styrkurinn, þessar 72.000 kr. dragast frá framfærsluláni. Þannig að þetta fyrirkomulag felur í rauninni í langflestum tilvikum í sér stuðning síðar meir, eftir að námi lýkur, nema ég sé að misskilja eitthvað, sem getur vel verið.

Það væri svo sem gaman að heyra hvort hv. þingmaður sé ekki bara sammála mér um að það þurfi að vera alveg á hreinu að skólagjaldalán verði að vera með inni í styrkjakerfinu. Núna er í rauninni verið að leggja til að 14. gr. núgildandi laga, þar sem er kveðið á um 30% af niðurfellingu heildarláns þar sem skólagjaldalán er talið með, falli brott og það komi önnur grein í staðinn þar sem er ekki gert ráð fyrir skólagjaldaláni. Þannig að kannski erum við bara öll sammála um að breyta þessu. En svo er það auðvitað þannig að svona grundvallarbreytingar á námslánakerfinu — ef ég þekki stjórnarmeirihlutann rétt þá verður svona löguðu aldrei breytt með þingmannafrumvörpum. En við skulum vera bjartsýn um að það sé hægt. (Forseti hringir.) Ég held einmitt að það sé margt þarna sem mætti rýna betur og breyta til hins betra.