Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Varðandi þann punkt að þetta breyti engu: Þetta er styrkur sem er greiddur út mánaðarlega ef þú ert í námi, styrkur sem er ekki greiddur út mánaðarlega á meðan þú ert í námi í dag. Þar er svarið. Þetta er 72.000 kr. styrkur sem ekki stendur námsmönnum til boða í dag en myndi gera það með þessu frumvarpi.
Að því sögðu þá fagna ég sem fyrr þátttöku hv. þingmanns í þessari umræðu. Við þekkjum það að stóri punkturinn hefur af hálfu stúdenta verið varðandi nemendur í BA- og meistaranámi: Hver er grunnframfærslan? Hvernig lítur frítekjumarkið út í gegnum tíðina? Samtal um skerðingarhlutföll o.s.frv. Grunnframfærslan er stóri punkturinn. Hérna erum við að tryggja hana, að hún standi raunverulega undir nafni sem slík og því til viðbótar geti stúdentar sótt um þennan mánaðarlega styrk, í einhverjum tilvikum með þeim afleiðingum að þeir taki þá ekki lán til viðbótar, komi skuldlausir úr námi, í einhverjum tilvikum styrk og lán, augljóslega til hagsbóta fyrir alla stúdenta.