152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

Menntasjóður námsmanna.

175. mál
[17:13]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég sé ekki betur en að gert sé ráð fyrir því að styrkurinn sé dreginn frá framfærsluláninu í hverjum mánuði í þessu frumvarpi þannig að fyrir langstærstan hluta lánþega myndi þetta fyrirkomulag ekki breyta neinu um það hvenær stuðningurinn kemur fram, hvort það er meðan á námi stendur eða síðar. Styrkurinn í dag er allt að 30% af heildarláni og ef þú ert með mjög mikið lán þá eru náttúrlega töluverðar líkur á því að þú fáir hærri styrk út úr því.

Með þessari breytingu er í rauninni verið að taka upp 72.000 kr. flatan styrk. Þetta er aðferðafræði sem mér hugnast ekki. Mér finnst þetta svolítið líkt nálgun Illuga Gunnarssonar á námslánakerfið á sínum tíma. Þá var frumvarp sem var ofboðslega umdeilt og var til allrar hamingju brotið á bak aftur hér í þinginu. Þar var líka gert ráð fyrir svona flötum stuðningi einhvern veginn. Ég er bara ekki viss um að þessi þáttur frumvarpsins, þessar breytingar á styrkjakerfinu sjálfu, væri endilega til bóta. En um leið tek ég undir með hv. þingmanni um mikilvægi þess að lögfesta grunnframfærsluna. Ég held að þetta frumvarp gæti verið mjög gott ef það tæki bara ákveðnum breytingum í allsherjar- og menntamálanefnd. Meira hef ég nú ekki um þetta að segja.