afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Frú forseti. Stutta svarið er auðvitað bara já. Eins og ég kom inn á í andsvari mínu áðan þá þurfum við að leiðrétta þennan mismun. Kannski gæti þetta orðið einhver útvíkkun á því í vinnslu nefndarinnar, og næði einnig utan um hlutafélögin, hin opinberu. Grunnurinn er auðvitað sá að aldur á ekki að ráða för heldur, eins og ég hef sagt, hæfni og færni fólks til að sinna því sem það er að sinna. Mér finnst að þetta eigi bara að vera opið. Í raun eiga engin mörk að vera. Það kom sannarlega fram í athugasemdum við þetta mál mitt, þegar það var lagt fram síðast, að það verði einhver sveigjanleiki, að hugsanlega sé hægt að hafa einhvern sveigjanleika þarna. Og nú hafa náttúrlega sveitarfélögin tvö ár, 70 plús. Þetta er með ólíkum hætti víða. Já, það er eiginlega jafnréttismál og mannréttindamál að þetta sé þannig að lögin bindi okkur ekki við aldur. Það er alltaf hægt að segja fólki upp á málefnalegum forsendum. Það þarf ekki að vera út af aldri.