afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Sókn í þágu eldra fólks. Aldur skiptir ekki máli heldur einstaklingurinn. Ég tek undir með hv. 1. þm. Norðaust. og fagna framlagningu þessa máls og ég þakka flutningsmanni þingsályktunartilllögunnar kærlega fyrir framlagningu hennar. Skyldubundin starfslok hljóma eitthvað skakkt. Fólk upplifir að það sé þvingað til að láta af störfum aðeins vegna þess að það er komið á aldur. Við þurfum að hugsa meira um hvernig við getum aukið vægi eldra fólks á vinnumarkaði á meðan það hefur heilsu til þess. Mismunum við fólki á grundvelli aldurs með því að hafa þessi mörk inni? Við heyrum ítrekað af þekkingarleka út úr stofnunum okkar, út af vinnumarkaðnum og út úr fyrirtækjum í einkageiranum þegar reynslumikið fólk lætur af störfum, ekki út af því að það langar til þess heldur vegna aldurs, það er skikkað til þess. Í aðdraganda kosninga og í áherslum Framsóknar kristallast vilji okkar til þess að afnema reglur um að fólk fari á eftirlaun eða hætti störfum við ákveðinn aldur. Þeir sem vilja áfram vera virkir á vinnumarkaði eiga að hafa þess kost, bæði launafólk og verktakar. Vinnuveitandinn verður — við þurfum að fara í einhvers konar hugarfarsbreytingu í kjölfarið af framlagningu þessa máls. Allt samfélagið þarf að taka þátt í því.
Hv. þingmaður sagði að við þyrftum að fara í víðtækari breytingar og ég ætla að taka undir það. Við verðum að leggja áherslu á að endurskipulagning verði gerð á málaflokki eldra fólks út frá grunngildum aldursvæns samfélags, samþættingu persónumiðaðrar þjónustu og skýrri sýn á hlutverk og skyldur þeirra sem að þjónustunni koma. Horfa ætti til reynslunnar, m.a. af endurskipulagningu málefna barna. Lykilatriðið, eins og svo oft áður, er aukin samvinna innan kerfisins. Það er kafli í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar sem heitir: Við ætlum að fjárfesta í fólki, þar sem tekið er fram að auður íslensks samfélags byggi á því að við skiptum öll máli og undirstrikað mikilvægi þess að við fáum tækifæri til að taka þátt. Þessi kafli er til kominn vegna þess að ein stærsta breytingin á samsetningu þjóðfélagsins næstu árin er fólgin í því að þjóðin er að eldast. Þjóðin er að eldast og ég legg áherslu á það. Við erum heilsuhraustari lengur og við horfum fram á hærri meðalaldur en hér á árum áður. Þetta er mikilvægt réttindamál og ég styð heils hugar við markmið og inntak frumvarpsins. Við viljum öll hafa tilgang og leggja okkar af mörkum, óháð því hversu gömul við erum.