afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegur forseti. Ég ætla, eins og aðrir þingmenn, að koma hér upp og hrósa þessari þingsályktunartillögu og tel hana mikilvæga. Það er í rauninni bara asnalegt að við séum ekki búin að þessu nú þegar, vegna þess að eins og hér hefur verið komið inn á er þetta lýðheilsumál og við horfum á svo breytt þjóðfélag. Sem betur fer lifum við lengur og erum við betri heilsu, flest okkar. Þar af leiðandi er það að verða sjötugur í dag ekki það sama og að verða sjötugur fyrir 50 árum síðan. Það er bara svolítið öðruvísi sem betur fer. Það er ljóst að ein af okkar áskorunum til framtíðar í ríkisrekstri er öldrun þjóðarinnar. En það er líka vegna þess að við erum alltaf að horfa á þetta módel, þ.e. fjölda þeirra sem eru eldri en 67 ára, á móti þeim sem eru á vinnufærum aldri, undir 67 ára. Þá horfum við á kostnað í heilbrigðiskerfinu og hvernig tekjurnar koma svo inn af vinnandi fólki. Auðvitað hlýtur hluti af þessari lausn eða af þessari framtíðarsýn að vera sá að líta ekki á vinnufæran aldur bara til 67 ára eða 70 ára heldur eins lengi og fólk vill og það getur unnið. Það er auðvitað bara eðlilegt, finnst manni, í lýðræðisþjóðfélagi að fólk fái tækifæri til að nota áfram krafta sína og að það er líka mikilvægt fyrir samfélag okkar að nýta þekkingu þeirra sem fyrir eru og hafa áratugareynslu.
Mig langar líka í þessu samhengi að nefna kannanir á bláu svæðunum í heiminum. Ég veit ekki hvort hv. þingmenn þekkja til þeirra, en það eru sem sagt þau svæði í heiminum þar sem lífaldur er hvað hæstur. Þetta eru einhverjar grískar eyjar, þetta eru staðir í Bandaríkjunum, Japan og á fleiri svæðum í heiminum. Það hefur verið tekið saman hvað einkennir þessi svæði. Það er auðvitað mataræði og hreyfing. En það er líka tilgangur, tilgangur í samfélaginu, að fólk hafi eitthvað við að vera og sé hluti af einhverju og margir sérfræðingar vilja meina að það sé eitt af því mikilvægasta. Ég held að það sé svolítið mikilvægt fyrir okkur að hugsa, þá sérstaklega núna þegar við erum að koma út úr heimsfaraldri þar sem fólk hefur verið hindrað í því að hitta hvert annað og vera innan um annað fólk, sem við vitum jú að er mjög mikilvægt fyrir heilsu okkar allra, þ.e. að fólk hafi tilgang. Þess vegna held ég að leiðin hljóti að vera sú að við eigum að opna á þetta. Það er í rauninni asnalegt að lögin sjálf segi til um þetta, heldur á einstaklingurinn sjálfur og þá vinnuveitandinn, að hafa eitthvað um það að segja hvenær og með hvaða hætti fólk lætur af störfum. Ég held að það sé líka svolítið stór þáttur í þessu að við þurfum að opna á möguleika á hlutastörfum. Það á bæði við um þegar fólk eldist, að það hafi tækifæri til að sinna einhverju öðru en bara vinnunni, en jafnframt hafa kannski tækifæri til að sinna vinnunni, gefa áfram af þekkingu sinni. Þetta á líka við um fólk með skerta starfsgetu, eins og fatlaða. Þetta er jafnframt mikilvægt í nútímasamfélagi. Við viljum hvetja til barneigna og að hér séu fjölskyldur. Það er rosalega mikið ef allir þurfa alltaf að sinna 100% vinnu, ég tala nú ekki um eins og á Íslandi þar sem okkur hættir til að sinna yfirleitt 150% vinnu. Ég held að þetta sé mikilvægt.
Ég get þó ekki látið hjá líða að segja að það er kannski full ástæða til að endurskoða alveg lög um opinbera starfsmenn, ekki bara ákvæði um aldurstengingu. Á síðustu misserum hefur lífeyriskerfi okkar tekið verulegum breytingum. Hluti af því er að reyna að jafna lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna og þeirra sem unnið hafa á einkamarkaði og er mjög mikilvægt jafnréttismál. Við erum á góðri vegferð með þetta.
Það er líka mikilvægt að hið opinbera sé samkeppnishæft í launum, en að mínu mati er líka mikilvægt að hið opinbera sé ekki leiðandi í launaþróun. Þarna er einhver fínn meðalvegur. Af hverju er ég að segja þetta? Það er auðvitað þannig að lög og réttindi, sem eru falin í lögum um opinbera starfsmenn, þarf að endurskoða ef við ætlum á annað borð að jafna tækifæri þessara tveggja markaða. Og ég held að það sé ekki síður mikilvægt fyrir hið opinbera því að það er svo mikilvægt að fólk fari á milli þessara markaða, þ.e. að starfsmenn og hið opinbera njóti líka krafta þeirra sem koma af almennum markaði, alveg eins og ég held að það geti verið mikilvægt fyrir atvinnulífið að fá fólk af opinbera markaðnum til sín. Það hefur kannski í gegnum tíðina verið of mikill fasti að fólk gangi inn í einhverjar stöður, fari að vinna hjá stofnunum eða ráðuneytum og sé þar oft út sína starfsævi. Og svo oft á hinn veginn líka, að þegar fólk fer út í atvinnulífið, í einkageirann, þá komi það sjaldan inn í opinbera geirann.
Ég er örugglega flækja umræðuna um þetta mikilvæga mál, 70 ára aldurinn og það. En ég held að við í þessum sal þurfum líka vekja upp umræðuna um þessi lög og ákveðinn stirðleika sem felst í lögunum, stífan ramma sem opinberir stjórnendur eru oft settir í vegna þessara laga, sem getur hamlað framþróun opinberra stofnana og mannauðsstefnu þeirra. Ég vildi varpa þessu hérna fram.