152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

160. mál
[17:53]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda og öðrum þeim sem tekið hafa til máls í þessu samhengi öllu. Það er búið að segja margt af því sem ætti kannski að segja í þessu samhengi. Það er búið að varpa ljósi á svo margt sem ekki lá eins ljóst fyrir, segjum fyrir 100 eða 200 árum, á Íslandi þegar menn og konur voru kannski alveg búin um þrítugt, fóru að hrynja niður gatslitin af puðinu og öllu því sem var svo erfitt í harðbýlu landi þess tíma. Svo er það bara almennt í heiminum að menn eru að viðurkenna að sjötugsaldurinn er hinn nýi fimmtugsaldur og allt í þá átt og lýðheilsa almennt að stefna í betri átt.

Ég hef verið þeirrar skoðunar um langt árabil að það sé í raun ávísun á hröðun öldrunar og hrumleika að hætta að vinna. Ég veit að ég deili þessari skoðun ekkert endilega með öllum en í mínum huga væri það alveg fráleit tilhugsun að ætla að hætta að vinna á einhverjum ákveðnum aldri. Þá fyrst hefur mér kannski fundist menn byrja að eldast óeðlilega hratt. Þá er það þetta sem hér hefur komið fram, tilgangurinn, hlutverkin í lífinu og allt það. Ég er kannski heppinn að því leyti að hafa tónlistargyðjuna sem minn förunaut og það gerði mér kleift fyrir mörgum árum að ákveða að ég ætlaði aldrei að hætta að vinna eða stefna að því að hætta að starfa á hvaða vettvangi sem það yrði. Það eitt og sér, sú ákvörðun, hefur veitt mér ákveðið frelsi til að planleggja eins langt fram í tímann og mér sýnist — [Þingmaður bankar þrjú högg í ræðupúlt.] að því gefnu að heilsa og þrek endist.

Ég get alveg upplýst það hér að þó að ég hafi marga fjöruna sopið í lífinu og ekkert alltaf lifað samkvæmt ströngustu heilsuviðmiðum þá hefur mín orka, bæði andleg og líkamleg, vaxið í öfugu hlutfalli, finnst mér, við lífaldur. Mér finnst skemmtilegra að vera til núna en það var fyrir tíu, 20 eða 30 árum. Tilhlökkunarefnin eru svo geysimörg.

Þegar 1. þm. Norðaust. tók til máls hér áðan þá gat ég ekki stillt mig um að rifja upp að þegar fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Akureyrar um áratugaskeið lifði og starfaði á Akureyri — maðurinn sem ég er skírður eftir, Jakob Frímannsson — og var kaupfélagsstjóri kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, KEA, og stjórnarformaður SÍS, að líkindum stærsta fyrirtækis Íslandssögunnar, með meiri veltu en sjálfur ríkissjóður á þeim tíma — hafði stjórn KEA ákveðið, sennilega í kringum 1950 eða 1960, að menn skyldu ljúka störfum sjötugir. Þegar hann var búinn að byggja upp það stórveldi sem KEA var og SÍS á landsvísu leið að því að hann varð sjálfur sjötugur og bjó sig undir að hætta. Þá var það eindregin áskorun stjórnarinnar að hann myndi ekki hætta sjötugur, þeir sáu að maðurinn var í fullu fjöri og betur til þess fallinn en nokkur annar í sjónmáli að leiða þetta farsæla fyrirtæki áfram, hverju merkt var nánast önnur hvor bygging á Akureyri, og sumir sögðu að allt væri merkt KEA nema sjálf kirkjan, sem hann var eiginlega aðalhvatamaður og framkvæmdamaður að. Engu að síður: Hann gat ekki hugsað sér það samvisku sinnar vegna að taka þeirri áskorun lengur en í eitt ár þannig að hann ákvað að láta af störfum 71 árs. Þegar maður horfir á þá gríðarlegu uppbyggingu sem þar hafði átt sér stað í 40 ár, undir hans handleiðslu, byrjaði á þeim vendipunkti að síga í hina áttina, því miður. Hann þurfti, maðurinn sem ók sínum Chevrolet A4 fram á tíræðisaldur og kvaddi síðan ekki fyrr en á 95. aldursári, að horfa á þann skelfilega harmleik að þetta risafyrirtæki, sem hann hafði tekið virkan þátt í að byggja upp, hvarf bókstaflega og varð ekki lengur til sem alvörufyrirtæki heldur einhver sjóður sem síðan hefur smám saman gufað upp, því miður. Það sama gilti um Samband íslenskra samvinnufélaga.

Ýmislegt fleira hefur eflaust átt þátt í því að þessi endalok urðu þannig en ég held að flestir sem fylgdust með þessu hafi áttað sig á því að ef menn eins og hann eru í fullu fjöri, búnir að byggja upp svo farsælt fyrirtæki á svo ótrúlegan hátt, sé alveg fráleitt að miða við einhverjar tölur, einhverjar kennitölur, og segja: Ja, hér lýkur þessu og nú taka bara einhverjir aðrir við, einhverjir aðfluttir eða innfluttir eða ótengdir. Með fullri virðingu fyrir öllum eftirmönnunum þá held ég að þarna hafi verið mjög skýrt dæmi um hversu fráleit þessi gamla regla er. En hún er auðvitað gömul og við erum hér nokkurn veginn einhuga um að afnema hana í samhengi ríkisstarfsmanna og fyrirtækja sem tengjast ríkinu, hinu opinbera.

Ég held að þetta sé ákveðin innstilling sem við þurfum að breiða út, ekki bara meðal okkar hér í þessum sölum heldur um samfélagið allt. Þetta er tímaskekkja, þetta er búið. Nú tekur bara annað við, rétt eins og með bílinn okkar sem við þurfum að fara með í skoðun. Ef eitthvað klikkar, ef hann stenst ekki skoðun, þá er það bara þannig. Við ætlum að fara áfram og vera áfram í hópi elstu og heilbrigðustu þjóða. Í staðinn fyrir að tala um að menn og konur eldist kýs ég að segja að þau þroskist. Umræðan er að þroskast í rétta átt. Þakka ykkur fyrir sem hafið tekið þátt í henni og leitt hana.