152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

160. mál
[18:03]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði að koma hérna upp og þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Þetta er gífurlega mikilvægt og hefur verið eitt af því sem við í Framsókn höfum talað fyrir, að við séum ekki með aldurstakmörk. Ef maður er búinn að ná ákveðnum aldri þá er maður hæfur til að sinna þeim skyldum sem lagðar eru á mann sem fullorðinn einstakling. Ég vil bara þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að vekja máls á þessu. Þetta er mikilvægt. Við erum öll orðin fullorðin á ákveðnum tímapunkti og við eigum ekkert að hafa nein takmörk eftir það.