húsnæðisliður í vísitölunni.
Herra forseti. Ég efast ekkert um að það eru margar góðar hugmyndir sem koma frá Flokki fólksins, svo að ég segi það hér (IngS: Frábærar.)og ég vil ítreka það sem ég sagði. Hv. þingmaður spurði um húsnæðislánin og ég taldi að ég hefði svarað því mjög skýrt, að það var niðurstaða stjórnvalda, í samráði við aðila vinnumarkaðarins, að taka hann ekki út úr vísitölunni, það breytir kannski ekki undirliggjandi stöðu. Hvað varðar húsnæðismarkaðinn þá erum við hv. þingmaður sammála um þau atriði, það er þörf á að taka hann til sérstakrar skoðunar. Hann var umfjöllunarefni á síðasta fundi þjóðhagsráðs þar sem aðilar vinnumarkaðarins sitja ásamt Seðlabankanum og fulltrúum ríkis og sveitarfélaga. Þar var farið yfir hvernig hefur gengið að vinna með þær tillögur sem lagðar voru fram af átakshópi um húsnæðismál 2019. Mjög mörgum af þeim aðgerðum er lokið og það endurspeglast í því að þriðjungur af þeim 3.000 íbúðum sem voru byggðar hér 2020 og 2021 var til kominn vegna aðgerða stjórnvalda. En við sjáum líka í mannfjöldaspá Hagstofunnar að við getum reiknað með aukinni byggingarþörf, (Forseti hringir.) að hún fari árlega úr 3.000 íbúðum á ári upp í 3.500 íbúðir á ári. Það er því alveg ljóst að grípa þarf til aðgerða þegar kemur að framboðshliðinni á húsnæði. Ég myndi gjarnan vilja meiri tíma hér, herra forseti, en hef hann ekki.
(Forseti (BÁ): Hæstv. forsætisráðherra fór 28 sekúndur fram yfir ræðutímann og vill forseti minna á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er takmarkaður.)