152. löggjafarþing — 29. fundur,  31. jan. 2022.

afstaða ráðherra til sóttvarnaaðgerða.

[15:19]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en mér þykir það heldur lint, verð ég að viðurkenna, af því það eru ekki nema nokkrir dagar síðan hæstv. heilbrigðisráðherra sagði að með orðum sínum og framgöngu væru hæstv. ráðherrar Sjálfstæðisflokksins að grafa undan markmiðum sóttvarnaaðgerðanna. Hvernig slá þau orð hæstv. utanríkisráðherra, varaformann Sjálfstæðisflokksins, þegar við erum að horfa til þess að til að mynda í byrjun síðasta kjörtímabils gekk Vinstrihreyfingin – grænt framboð svo sem ekkert varlega um í samskiptum sínum við forvera hæstv. ráðherra í dómsmálaráðuneytinu sem þá vék úr embætti að kröfu Vinstri grænna? Er ekki tími til kominn að Sjálfstæðisflokkurinn setji sig í stand í þessu máli?