afstaða ráðherra til sóttvarnaaðgerða.
Herra forseti. Þetta verkefni snýst ekki um þá flokka sem standa saman að ríkisstjórn eða einhverja ákveðna leikendur þar inni. Þetta verkefni snýst um að ná jafnvægi í því að tryggja það að sóttvarnir séu nægar til að vernda líf og heilsu fólks og að við séum með þær efnahagsaðgerðir sem þarf til að mæta því. En ég ítreka það hér sem ég hef áður sagt, mér finnst við vera komin á þann stað núna að ef við værum að taka við ómíkron-afbrigði og þeirri hættu sem í því felst þá sé ég ekki fyrir mér að við værum að ræða þær samfélagslegu takmarkanir sem við erum með í dag. Í mínum huga er það alltaf kjarni máls og við eigum að miða okkur og máta okkur við það. Þess vegna fagna ég því að við séum að taka þau skref sem við erum að taka og ég bind mjög miklar vonir við að hægt verði að taka stærri skref innan þess tíma sem lagt var upp með, enda er ekki hægt að festa afléttingar við dagsetningar vegna þess að við þurfum á hverjum tíma að vera viss um (Forseti hringir.) að við séum innan ramma laganna þegar kemur að heimild okkar til að beita slíkum takmörkunum.