152. löggjafarþing — 29. fundur,  31. jan. 2022.

umsækjendur um alþjóðlega vernd.

[15:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Í samráðsgátt stjórnvalda hefur birst frumvarp hæstv. innanríkisráðherra til breytinga á lögum um útlendinga er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd. Svo virðist sem hæstv. ráðherra sé þar hvort tveggja að leggja til lagabreytingar á sínu málefnasviði sem og á málefnasviði hæstv. félagsmálaráðherra, sem hlýtur þá að vera samþykkur frumvarpinu.

Ég vil spyrja hæstv. félagsmálaráðherra út í þær breytingar sem lagðar eru til að verði á þjónustu við fólk á flótta þess efnis að 30 dögum eftir synjun umsóknar falli öll þjónusta niður, þar með talið húsaskjól, framfærsla, heilbrigðisþjónusta, og er þar ekki undanskilinn hópur sem vegna veikinda sem komin eru til vegna flóttans er í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá er vert að vekja athygli á að þessi 30 daga frestur er eingöngu fyrir þau sem koma beint frá ríki utan EES og þau sem koma ekki frá svokölluðum öruggum ríkjum. 30 daga fresturinn á ekki við hina, alla hina sem einhvern veginn komu frá öðrum ríkjum og missa samstundis réttindi sín eftir að stjórnvöld hafa synjað umsókn þeirra. Nú skulum við átta okkur á því að með þessu getur sá sem lendir í slysi eða sá sem á við alvarlegan heilbrigðisvanda að etja ekki fengið nokkra einustu þjónustu hér á landi, ekki heilbrigðisþjónustu og viðkomandi skal búa á götunni í boði íslenskra stjórnvalda.

Vegna þessa vil ég spyrja hæstv. félagsmálaráðherra hvað hann og hæstv. innanríkisráðherra telji sig ná fram með slíkum breytingum, að gera fólki að koma sér fyrir út undir vegg um borg og bæ á meðan beðið er brottflutnings og þar með geti stjórnvöld ekki haft neina yfirsýn yfir hvar fólkið er eða hvernig því vegnar né veitt því lífsnauðsynlega þjónustu á meðan (Forseti hringir.) það bíður brottvísunar. Það væri gott að fá svar frá hæstv. félagsmálaráðherra um þetta frumvarp.