umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Umrætt frumvarp sem hv. þingmaður nefnir hefur að geyma ákveðna þætti sem varða — ef ég er að horfa á sama frumvarp og hv. þingmaður, þ.e. sem hefur að geyma ákveðna þætti er varða atvinnuleyfi … (Gripið fram í.) Það er ekki svo. Það er þá hitt. Ókei, hv. þingmaður er þá að tala um þjónustuna. Ég er búinn að ná því núna. Þakka þér fyrir, hv. þingmaður. Ég verð að viðurkenna að þetta er eitthvað sem ég þarf að setjast betur yfir. Ég tel að þetta sé eitthvað sem við þurfum að skoða. Það hefur verið í umræðunni með hvaða móti eigi að reyna að takast á við þá þætti eða þann hóp af fólki sem orðið hefur eftir vegna Covid og hefur fengið frávísun frá landinu, með hvaða hætti megi auðvelda og hjálpa því fólki að komast heim til sín sem hefur neitað að fara heim. Verkefnið í mínum huga er með hvaða móti við getum leyst það. Síðan eru hér lagðar fram ákveðnar tillögur í þessu frumvarpi ráðherrans. En ég vil fá að kynna mér þetta betur, ég ætla að vera algerlega hreinskilinn með það, og mun gera það.