152. löggjafarþing — 29. fundur,  31. jan. 2022.

samstaða um gerð kjarasamninga.

[15:34]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Fram undan er veruleg vinna við gerð kjarasamninga við ýmsa hópa á Íslandi. Sú staða sem nú er uppi gefur hins vegar ekki tilefni til bjartsýni. Við erum að upplifa mestu verðbólgu síðasta áratugar sem er langt umfram það sem forsendur kjarasamninga byggðu á. Margir hópar stíga nú fram og lýsa stöðu sinni. Má þar nefna grunnskólakennara sem nýverið felldu kjarasamning sem byggði á svonefndum lífskjarasamningi. Formaður BHM stígur fram og segir að meta þurfi menntun til launa og fær strax viðbrögð við því, m.a. frá fyrrverandi formanni Eflingar sem talar fyrir áframhaldandi hækkun lægstu launa. Það var um það samstaða í síðustu kjarasamningum að leggja áherslu á sérstaka hækkun lægstu launa en sú samstaða virðist vera brostin. Í verðbólgu dagsins í dag upplifa stórir hópar að kaupmáttur launa þeirra sé að rýrna. Þeir hópar munu krefjast launaleiðréttingar. Lífskjör eru óumdeilt að versna vegna verðhækkana, hækkandi matarverðs og aukins húsnæðiskostnaðar vegna hækkandi vaxta. Hvernig sér félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir sér að hægt verði að ná samstöðu um gerð kjarasamninga í því ástandi sem nú er?