152. löggjafarþing — 30. fundur,  31. jan. 2022.

dýralyf.

149. mál
[18:00]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram, með leyfi forseta:

„Starfshópur, sem heilbrigðisráðherra skipaði til að innleiða framangreindar Evrópugerðir, komst að þeirri niðurstöðu að þörf væri á nýjum heildarlögum um dýralyf. Frumvarp þetta er afrakstur vinnu starfshópsins.“

Mér finnst mikilvægt að það komi fram, og er aðalástæðan fyrir því að ég er ekki með á þessu máli, að starfshópurinn sem var stofnaður og átti að taka til starfa 2020 hóf vegna mistaka ekki störf fyrr en sumarið 2021. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að halda kosningar að hausti og kosningaklúðrið sem verður í Norðvesturkjördæmi í kjölfarið á því hefur þau áhrif að þetta frumvarp er unnið í flýti, unnið í mikilli tímaþröng. Það er mikilvægt að þetta frumvarp verði að lögum, það átti að gerist fyrir 28. janúar, skildist mér þannig að við erum komin smá eftir á, en það er vegna þess að það er reglugerð Evrópusambandsins sem þarf að innleiða. Það er mín reynsla að þegar svona frumvörp — þetta eru heildarlög sem verið er að vinna — eru unnin á handahlaupum snareykur það líkurnar á að það verði einhvers konar mistök. Það gerist allt of oft í okkar vinnu. Ég átta mig á því að þetta voru mistök, það var ekki ætlunin að hefja störf starfshópsins svona seint, en það þýðir fyrir mig að ég treysti mér ekki til að vera á þessu máli og bera ábyrgð á því á neinn hátt. Mér fannst mikilvægt að það kæmi fram. Þetta er mjög líklega hið fínasta mál en ég mótmæli svona vinnubrögðum yfir höfuð og mér finnst að við eigum að vanda okkur og koma í veg fyrir svona í framtíðinni.