um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Mér finnst full ástæða til að koma hingað upp og nefna þetta líka og taka undir það sem hv. þingmenn hafa verið að tala um. Það er ekki bara stjórnarandstaðan sem kallar eftir einhvers konar upplýsingum. Hér hefur forsætisráðherra tjáð sig með afgerandi hætti um að þingið eigi rétt á upplýsingum og að framkvæmdarvaldið þurfi að fara eftir því þegar um er beðið. Fjármálaráðherra hefur gert það. Forseti Alþingis hefur tekið undir að það þurfi að taka málið upp. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar er líka þeirrar skoðunar að þetta þurfi að gera, einfaldlega vegna þess að þarna tekur ráðuneyti og stofnun, eða ráðherra og stofnun, sér vald sem það hefur ekki. Maður hlýtur að velta fyrir sér: Hver geta úrræði Alþingis verið þegar þessi staða er uppi? Mér finnst mjög sérkennilegt að þetta sé svona dag eftir dag eftir dag. Engin svör koma um hvað á að taka við. Við erum áfram föst í einhverju nuddi hér í þessum sal við framkvæmdarvaldið þegar lögin eru algjörlega skýr.