um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að taka undir með þeim þingmönnum sem hér hafa kvatt sér hljóðs. Ég er í allsherjar- og menntamálanefnd, 1. varaformaður, og ég verð að segja að ég er algjörlega orðlaus yfir þessu. Það sem virðist vera í gangi hérna er að umboðsmaður setti ofan í við ráðuneytið vegna tafa á málsmeðferð um afgreiðslu á ríkisborgararétti hjá Útlendingastofnun, sem er stjórnsýslumeðferð, og það er ekki fyrir Alþingi. Það virðist vera að dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun séu að rugla saman stjórnsýslumeðferð og undirbúningi máls undir stjórnsýslumeðferð og undirbúningi máls fyrir Alþingi. Það virðist vera að dómsmálaráðuneytið skilji ekki muninn þar á. Maður les í blaðaskrifum ráðherra um einhverja VIP-meðferð fyrir Alþingi og hann er að bera það saman við stjórnsýslumeðferð Útlendingastofnunar. Það er bara gjörólíkur hlutur. Við þurfum að fá þessar umsóknir með tveimur umsögnum, frá lögreglustjóra í umdæminu (Forseti hringir.) þar sem viðkomandi dveljast og líka umsögn frá Útlendingastofnun. Það er algerlega komið nóg. Þetta er spurning um virðingu Alþingis og ekkert annað.