152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[13:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Undanfarnar vikur höfum við í rauninni orðið vitni að valdaráni stofnunar sem fær boð frá ráðherra um að sniðganga Alþingi og lög. Alþingi er meinað að framkvæma það sem lögin segja að Alþingi eigi að framkvæma. Ég hef áður komið hingað upp og skorað á allsherjar- og menntamálanefnd að auglýsa eftir umsóknunum, að auglýsa og hvetja þá umsækjendur sem skiluðu inn umsóknum sínum síðastliðið haust til þess að senda Alþingi beint allar upplýsingar. Auðvitað á Útlendingastofnun samkvæmt lögum að skila inn umsögn og skila inn umsögn frá lögregluembættunum í næsta nágrenni við þann stað þar sem umsækjandi býr. Það er samkvæmt lögum. Það er alla vega ekki hægt að koma í veg fyrir (Forseti hringir.) að Alþingi geti fengið nauðsynlegar upplýsingar beint frá umsækjendum. Ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að gera þetta.