störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar til að gera heilsu þjóðarinnar að ræðu minni í dag. Heilsan er ekki bara líkamleg heldur einnig andleg og félagsleg. Sá heimsfaraldur sem gengur nú yfir hefur opnað augu okkar allra fyrir mikilvægi lýðheilsu, en rannsóknir sýna ótvírætt að þeir einstaklingar sem eru við góða heilsu eru mun ólíklegri til að veikjast alvarlega af faraldrinum auk þess sem reynt hefur verulega á félagslega þætti í samfélaginu sem eru nátengdir heilsufarslegri útkomu okkar. Ástæða þess að ég nefni þetta hér snýr að mikilvægi þess að halda heilsuhraustu fólki áfram heilsuhraustu. Heilbrigðiskerfið okkar er með þeim bestu í heimi, en það er fyrst og fremst miðað út frá því að taka á vandanum þegar skaðinn er skeður og skortur á heilsueflandi aðgerðum í samfélaginu blasir því við. Um þetta eru okkar helstu sérfræðingar sammála. Samkeppnisstaða okkar og velferð þjóðarinnar byggist á getu okkar til þess að breyta kerfinu, auka heilsueflingu og forvarnir og skapa þannig grundvöll fyrir heilbrigðara samfélag.
Stefið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar snýr einmitt að sókn á sviði lýðheilsu, en þar segir, með leyfi forseta:
„Það eru sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar, efnahagslegir og félagslegir, að lögð sé aukin áhersla á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál.“
Frú forseti. Setjum heilsueflandi Ísland í forgang. Tryggjum markmiðin sem fram koma í lýðheilsustefnu um að Íslendingar verði ein heilbrigðasta þjóð í heimi. Gerum það með samvinnu og hefjumst handa hið fyrsta.