152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Í fréttum helgarinnar var fjallað um notkun á blóðsykurslækkandi lyfjum og að hún hafi sífellt aukist. Fleiri einstaklingar hér á landi greinast með sykursýki 2 og þá eru lyfin einnig notuð við meðferð við ofþyngd. Blóðsykurslækkandi lyf eru notuð í auknum mæli til að meðhöndla sykursýki 2 og hefur fjöldi notenda nærri tvöfaldast frá árinu 2015. Þá voru þeir nærri 9.000 eru orðnir meira en 16.000 árið 2021. Umræðan um ofþyngd er vandasöm. Að sjálfsögðu er ekki hægt að mæla heilsu með því eingöngu að horfa á kíló og tölu á vigt. Einstaklingur getur verið við góða heilsu þrátt fyrir að vera með örfá aukakíló. Við vitum að þar spila inn í aðrir þættir en það er óumflýjanleg staðreynd að ofþyngd getur stuðlað að sykursýki 2. Allt of oft erum við að bregðast við afleiðingum í stað þess að einbeita okkur frekar að forvörnum. Rannsóknir sýna okkur að fjölgun sykursjúkra hér á landi er sambærileg Bandaríkjunum fyrir 20 árum síðan. Innlendar rannsóknir hafa einnig sýnt að aukning á sykursýki dreifist yfir allan aldur fullorðinna og eykst hjá báðum kynjum. Einstaklingar sem eiga við matarfíkn að stríða eiga og þurfa að fá aðstoð við að leysa úr sínum vanda. Við þurfum að byggja upp öflugra kerfi þar sem markmiðið er áfram að aðstoða fólk með raunverulegum hætti. Lyf og inngrip með skurðaðgerðum mega ekki vera fyrsti valkostur. Við þurfum að mæta fólki af virðingu og fordómaleysi og veita því þá þjónustu og stuðning sem það þarf til að ná markmiðum sínum. Þá þurfum við sem þjóð að líta í eigin barm. Hvað er það sem veldur því að þjóðin er að þyngjast með tilheyrandi fylgikvillum? Það er mikilvægt að heilsuefling og bætt lýðheilsa fái stuðning frá stjórnvöldum og heilbrigðisþjónustan, þá sérstaklega heilsugæslan, taki áfram virkan þátt í því starfi. Verið er að gera vel víðs vegar í kerfinu en við þurfum að gera betur. Við þurfum að einbeita okkur betur að forvörnum sem eru mikilvægasti þátturinn. Aðeins þannig getum við búist við árangri.