störf þingsins.
Frú forseti. Þrátt fyrir umtalsverðar áhyggjur mínar, annars vegar af vanmætti ríkisstjórnarinnar til að kveða okkar gamla fjandvin, verðbólguna, í kútinn, og hins vegar af óboðlegri stöðu sem hin köldu svæði landsins eru í varðandi orkuöryggi í boði þessarar sömu ríkisstjórnar, sem á fjórum og hálfu ári hefur ekki getað ákveðið sig sameiginlega hvort hún eigi að koma eða fara, og fara þá hvert, í stefnu þessa málaflokks, ákvað ég að nota þessa mínútu mína hér til að ræða um íþróttir. Síðastliðinn áratug hefur íslenskt afreksíþróttafólk nefnilega reglulega vakið athygli á slæmri fjárhags- og réttindastöðu sinni. Ég gladdist því þegar Alþingi samþykkti á síðustu dögum síðasta þingvetrar þingsályktunartillögu mína um að fela ráðherra málaflokksins að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum. Stefnan á að vera tímasett samhliða því sem tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við afreksfólk. Ráðherra fékk þau skilaboð frá Alþingi að skila stefnunni fyrir 1. júní á þessu ári. Í dag eru akkúrat fjórir mánuðir til stefnu. Það er ekki langur tími. Mér þótti því ánægjulegt að heyra Ásmund Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, lýsa því yfir á Rás 2 á dögunum að hann væri kominn af stað með vinnuna sem Alþingi hafði falið honum. Ég vil nota tækifærið hér og hvetja hæstv. ráðherra til dáða svo að Alþingi fái umbeðna stefnu, metnaðarfulla stefnu fyrir sumarið, fyrir afreksfólkið okkar, fyrir börn og unglinga þessa lands sem stunda íþróttir, og fyrir íslenska þjóðarsál.