152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ný ráðuneyti taka til starfa í dag, 1. febrúar, og nýtt skipulag Stjórnarráðsins. Kapallinn og tvö ný ráðuneyti hafa í för með sér rask, miklar tilfæringar starfsmanna og tafir og þetta kostar. Um þetta sagði hæstv. fjármálaráðherra nýlega á þingi, með leyfi forseta:

„… það er ljóst að með því að stofna nýtt ráðuneyti, fleiri en eitt, þá mun verða kostnaður og hann getur hlaupið á hundruðum milljóna.“

Svar hans eigin ráðuneytis liggur núna fyrir; kostnaðurinn verður að lágmarki 1,8 milljarðar. Ekki nokkur hundruð milljónir heldur um 2 milljarðar og sá kostnaður getur samkvæmt svarinu orðið enn hærri. 2 milljarða kapallinn snýst, eins og við vitum öll hér inni, ekki um að fjárfesta í fólki og byggir ekki á greiningum á þörf eða fjárfestingum í innviðum. Hann snýst um að fjárfesta í Framsókn. Það hjálpar stundum að setja svona tölur í samhengi og ég ætla að setja þær hallir sem stjórnin er að reisa sjálfri sér í samhengi við þá höll sem nú hefur verið talað dálítið um í samhengi við góðan árangur Íslands í handbolta. Ekkert íþróttahús á Íslandi uppfyllir í dag þau skilyrði sem gerð eru í alþjóðakeppnum. Handboltinn og körfuboltinn hafa verið á undanþágu og standa jafnvel frammi fyrir því að landsleikir verði spilaðir á erlendri grundu. Í skýrslu starfshóps um þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir, sem er frá september 2020, er kostnaðargreining þar sem fram kemur að höll fyrir 5.000 áheyrendur myndi kosta um 6,3 milljarða, höll fyrir 8.600 áheyrendur um 7 milljarða. Eftir glæsilegan árangur strákanna í handboltanum er draumurinn um að komast enn lengra á stórmóti í augsýn. Ný höll ætti að vera það líka en er það ekki. Þangað til verðum við kannski að láta okkur nægja að sennilega erum við heimsmeistarar í fjölda ráðuneyta.