152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Í kvöld verður á dagskrá sjónvarpsins fréttaskýringaþátturinn Kveikur en umfjöllunarefni þáttarins er aðkoma brotaþola að sakamálum, sér í lagi kynferðisbrotum. Þar bendir dr. Hildur Fjóla Antonsdóttir réttarfélagsfræðingur á að sú jaðarstaða sem íslenskt réttarvörslukerfi býður brotaþolum upp á hafi mjög slæm áhrif á fólk. Tímabært sé að breyta þessu og veita þeim meiri réttindi í eigin málum. Það er nefnilega svo að um leið og brotaþoli kærir kynferðisbrot fær viðkomandi réttarstöðu vitnis og fær í raun engin réttindi í því ferli sem þá hefst. Þetta felur m.a. í sér að viðkomandi fær nær engar upplýsingar um það hvernig rannsókninni miðar áfram né hvernig ákæruferlið þróast. Upplifun brotaþola er sú að ekkert sé að gerast og að þeim sé algerlega haldið utan við eigið mál. Sem foreldri brotaþola, sem var undir lögaldri þegar hún kærði kynferðisbrot, get ég svo sannarlega tekið undir það að núverandi fyrirkomulag fékk okkur til að tapa allri trú á íslenskt réttarkerfi. Í þættinum er bent á að réttarstaða brotaþola hérlendis sé mun veikari en víðast hvar á Norðurlöndum og er það ákall til okkar hér inni að gera mun betur. Það er því sterk von mín að við sem sitjum hér á þingi, og þá sérstaklega þeir þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd, taki höndum saman þvert á flokka til að tryggja aukna aðkomu brotaþola að málum sínum.