152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:06]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ætlar einhver í hæstv. ríkisstjórn Íslands að taka ábyrgð á stöðu efnahagsmála í dag? Er hæfnin til staðar? Treystir fólk sér til að viðurkenna hagstjórnarmistök? 400 milljarðar kr., það eru upphæðin sem heimilin í landinu hafa skuldsett sig fyrir efnahagsbatanum fyrir tilstuðlan þessarar ríkisstjórnar sem beið of lengi með markvissar aðgerðir þegar Covid skall á. Hún treysti á embættismenn í Seðlabankanum til að bjarga málunum og stíga inn í með almennar örvunaraðgerðir á tímum sértæks áfalls, aðgerðir sem hafa þanið eignamarkaði og markað fyrir heimili fólks. Þessi þróun var fyrirséð en nú mæta forsvarsmenn hæstv. ríkisstjórnar í fjölmiðla og segjast vanmáttugir gagnvart verðbólgunni, að lítið sé hægt að gera. Takið ábyrgð á ástandinu. Þetta eru afleiðingar verka eða öllu heldur verkleysis hæstv. ráðherra. Í að verða áratug hefur efnahagsstjórninni hér á landi verði stýrt meira og minna af sömu flokkunum. Þeir hafa brugðist fólkinu í landinu á húsnæðismarkaði og vandinn versnaði allverulega vegna hræðslu þessara stjórnvalda við alvöruaðgerðir í ríkisfjármálum í upphafi þessa faraldurs. Þessi kreddupólitík bitnar nú allhressilega á fólkinu í landinu. Við blasa vaxtahækkanir, enda 6% verðbólga en þetta er verðbólga ríkisstjórnarinnar. Það er ekki réttlætanlegt að hagstjórnarmistök hennar skapi neyð meðal viðkvæmra hópa.

Hæstv. ríkisstjórn þarf að sjá að sér, losa sig við kreddur og ráðast í neyðaraðgerðir í formi vaxtabóta, barnabóta og húsaleigubóta. Það er fólk þarna úti sem hefur ekki tíma til þess að bíða eftir óljósum loforðum um framtíðarúrbætur sem hafa setið á hakanum í áratug.