152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur styður ekki bann við kjarnorkuvopnum. Eins ótrúlegt og það kann að virðast er það svarið sem ég fékk frá utanríkisráðherra fyrr í vetur. Ég spurði: Eru áform um það af hálfu ríkisstjórnarinnar að Ísland undirriti og fullgildi samning um bann við kjarnorkuvopnum? Svarið var óvenjuskýrt af hálfu ráðherra: Nei. Nei, slík áform eru ekki til staðar hjá ríkisstjórninni. Þessi samningur, sem samtökin ICAN börðust fyrir og fengu friðarverðlaun Nóbels fyrir, er sennilega eitthvert mikilvægasta skref í átt að kjarnorkuafvopnun sem heimurinn á í dag. 86 ríki hafa undirritað hann, 59 ríki hafa fullgilt hann. Ísland ætlar ekki að vera í þeim hópi vegna þess að við erum í NATO.

Í staðinn bendir ríkisstjórnin á svokallaðan NPT-samning, sem er frá árinu 1968 og snýst um að dreifa ekki kjarnorkuvopnum og er allur á forsendum kjarnorkuveldanna. Þau sendu frá sér yfirlýsingu í kringum nýliðin áramót þar sem þau hvöttu til þess að við myndum ekki hleypa öllu í kaldakol og enda í kjarnorkustríði, sem er innantómt blaður frá ríkjum sem vilja halda áfram að eyða milljörðum í að uppfæra sín eigin kjarnorkuvopn og láta sig ekki dreyma um að leggja þeim. Á sama tíma og í sama svari kom fram frá utanríkisráðherra að ríkisstjórnin ætli ekki einu sinni að mæta á aðildarríkjafund samningsins um bann við kjarnorkuvopnum. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt öll ríki heims til að mæta alla vega á staðinn þó að þau skrifi ekki undir. Nú fengum við sem styðjum þennan samning tölvupóst í morgun þar sem okkur var sagt að aðildarríkjafundi samningsins yrði frestað. Hann átti að vera í mars en verður í maí eða júní vegna Covid. Ég hvet ríkisstjórnina til að endurskoða afstöðu sína að skrópa á þessum fundi vegna þess að sú afstaða byggist á forsendum kjarnorkuveldanna en ekki friðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)