störf þingsins.
Virðulegur forseti. Eigum við ekki að tala aðeins um Verbúðina? Algerir snilldarþættir sem staðsetja okkur svo rækilega í fortíðinni að við erum meira að segja farin að horfa á línulega dagskrá aftur. Það er gaman að rifja upp tíðarandann og enn gleðilegra að sjá hversu mikið samfélag okkar hefur mótast og þroskast. Við tókum það mikilvæga skref að leyfa bjórinn, ekki af því að við viljum að allir séu alltaf að þamba bjór heldur vegna þess að ríkisvaldið á að treysta borgurunum meira fyrir eigin velferð en tíðkaðist þá. Við spúum ekki lengur sígarettureyk yfir börnin okkar og unglingadrykkja er miklu minna vandamál í dag en þá. Það hafa orðið fleiri róttækari lýðheilsuframfarir því að túperað hár heyrir sögunni til og krumpugallarnir eru nánast horfnir og koma vonandi aldrei aftur. Við brosum yfir kjánalegum klæðaburði, hlæjum að kauðslegum karakterum og vörpum öndinni léttar yfir því að vera ekki lengur svona búraleg og lummó og á sama tíma fyllumst við nostalgíu og fortíðarþrá yfir þáttunum því að þetta er jú partur af sögu okkar.
En þættirnir sýna líka vel óheilbrigt samband stjórnmála og viðskipta þar sem sérhagsmunir fárra eru settir skör ofar hagsmunum almennings. Um leið og við brosum og söknum skulum við því hafa það hugfast, þegar við nörtum í poppið á sunnudagskvöldum, að umhverfið sem þættirnir sýna er ekki bara fortíð heldur líka nútíð. Tíðarandi tískunnar er vissulega horfinn en hinn pólitíski tíðarandi og veruleiki er enn til staðar. Áratugum síðar standa ríkisstjórnarflokkarnir enn grimma varðstöðu um sérréttindi og gríðarlegan arð sem í orðsins fyllstu merkingu er veiddur í troll og landað inn á bankareikninga útgerðarinnar án þess að þjóðinni sé greitt eðlilegt markaðsgjald fyrir. Ekki er síður pakkað í vörn þegar því sjálfsagða máli er hreyft að sett sé í stjórnarskrá almennilegt auðlindaákvæði sem tryggir hagsmuni okkar allra en ekki bara fárra. Verbúðin sýnir okkur fæðingu þessa óréttlætis. Það er okkar í þessum sal að útrýma því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)