störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í síðustu viku lýsti ung kona þungbærri reynslu sinni af 65 vikna bið eftir því að komast í kynleiðréttingaraðgerð. Það sem verra er, það var lítill fyrirsjáanleiki um hvenær aðgerðin mun fara fram og því engin leið til að sjá fyrir endann á biðinni. Þessi saga er ekkert einsdæmi. Eins og staðan er núna bíða 20 einstaklingar eftir því að komast í kynleiðréttingaraðgerð á Landspítala og lítil hreyfing hefur verið á biðlistum síðastliðin tvö ár. Við eigum að hlusta á trans fólk sem hefur upplifað sig jaðarsett og vanrækt í heilbrigðiskerfinu og upplifir skerta þjónustu nú á tímum heimsfaraldurs.
Frú forseti. Við vitum auðvitað að faraldurinn hefur haft áhrif á starfsemi Landspítalans og mörg eru í þeirri stöðu að þurfa að bíða eftir aðgerðum umfram hefðbundinn biðtíma. En þetta er engu að síður óboðlegt ástand því þessar aðgerðir eru lífsnauðsynlegar og þeim ætti að vera forgangsraðað út frá því. Formaður Trans Íslands hefur biðlað til Landspítalans og stjórnvalda að endurskoða forgang kynleiðréttingaraðgerða vegna þess að þessi ófyrirsjáanlega biðstaða hamlar fólki að lifa lífinu til fulls og finna sig öruggt í eigin líkama. Það að þurfa að bíða í óvissu svo árum skipti hefur alvarlegar afleiðingar á geðheilsu og lífsgæði fólks og við verðum að bæta úr þessu. Í ljósi þessarar umræðu sendi ég hæstv. heilbrigðisráðherra fyrirspurn til skriflegs svars varðandi biðtíma eftir kynleiðréttingaraðgerðum og vona innilega að forgangsröðun þessara lífsnauðsynlegu aðgerða verði endurskoðuð hið snarasta.