störf þingsins.
Forseti. Það er ekki sjálfsagður hlutur að geta eignast barn. Það reynist mörgum erfitt og oft þarf aðstoð tækninnar við. Kerfið í kringum tæknifrjóvganir hefur mikið batnað og ég hugsa með mikilli samúð til allra þeirra sem áður stóðu í sársaukafullri baráttu til að eignast barn án þeirrar þekkingar og tækni sem við búum við nú. En það er enn þörf á að endurskoða þetta kerfi svo ríkisvaldið sé frekar til aðstoðar en trafala gagnvart fólki sem langar einfaldlega til að hlúa að nýju lífi. Af illskiljanlegum ástæðum er sem dæmi lagt bann við því í lögum að gefa tilbúinn fósturvísi þótt bæði sé heimilt að gefa sæði og egg. Fólk sem vill fara í tæknifrjóvgun skal sömuleiðis vera skráð í staðfesta sambúð eða hjúskap. Við sambúðarslit er sama fólki bannað að nýta fósturvísinn sinn, jafnvel þótt einstaklingarnir vilji samt eignast barnið eða fyrir liggi samþykki beggja aðila fyrir því að annað þeirra nýti fósturvísinn.
Forseti. Ég er ósammála að þessar reglur þurfi. Ríkið á ekki að viðhafa þessa miðstýringu heldur að treysta fólki fyrir því að búa til fjölskyldu eins og það kýs. Reglur eiga fyrst og fremst að vera fyrir fólk og verður að rýna í takt við nýja tíma. Lengi vel var til að mynda bann við því að systir konu gæti gefið egg sitt og samkynhneigðir höfðu takmörkuð réttindi til að eignast börn. Hvort tveggja finnst okkur blessunarlega sjálfsagt í dag en það þótti ekki vera svo. Ég hef því sett af stað vinnu hér á þinginu við að taka til endurskoðunar þau atriði sem ég hef nefnt og fleiri þætti þessu tengt og mun leita til þingheims um samtal og stuðning við þær breytingar þegar fram í sækir, til að taka fleiri skref til aukins frelsis og stuðnings gagnvart fólki sem vill eignast börn.