152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Nýlega var okkur þingmönnum tilkynnt að forseti Alþingis hefði fallist á beiðni hæstv. menningarmálaráðherra um að ríkisendurskoðandi yrði fluttur yfir í nýtt ráðuneyti og skipaður ráðuneytisstjóri. Þetta er gert, samkvæmt tilkynningu á vef Alþingis, á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt ákvæðinu getur stjórnvald sem skipað hefur mann í embætti samþykkt að hann flytjist í annað embætti er lýtur öðru stjórnvaldi enda óski það stjórnvald eftir því.

Ef við skoðum aðeins greinargerðina frá því að starfsmannalögin voru sett þá kemur þar skýrt fram að ákvæðið snýst um heimildir ráðherra, að heimilt sé að flytja mann úr einu embætti í annað þótt embættin heyrir undir tvo ráðherra. Tvo ráðherra — þetta skiptir máli. Við skulum hafa það alveg á hreinu að Ríkisendurskoðun er ekki hluti af framkvæmdarvaldinu og ríkisendurskoðandi heyrir ekki undir neinn ráðherra. Þetta er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis, rétt eins og umboðsmaður Alþingis. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að með þessum gjörningi sé verið að misbeita 36. gr. starfsmannalaga. Það myndi engum detta það í hug að ráðherra gæti t.d. teygt sig yfir á svið dómsvaldsins og sótt sér þangað dómara og fært yfir í ráðuneyti sitt, en lögin gera heldur ekki ráð fyrir því að ráðherra teygi sig yfir á svið löggjafarvaldsins og eftirlitsstofnana þess og sæki sér þangað embættismann. Það er skaðlegt að beita lögunum með þessum hætti og það er óboðlegt að láta eins og forseti Alþingis hafi eitthvert húsbóndavald yfir ríkisendurskoðanda, að forseti fallist á flutning hans yfir til ráðuneytisins. Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður í sínum störfum, hann er trúnaðarmaður Alþingis, alls Alþingis. Hann er kosinn af Alþingi og honum verður ekki vikið úr starfi nema með samþykki Alþingis. Hér hefur verið sett mjög hættulegt fordæmi og ég mótmæli þessu. Þetta stríðir gegn þrískiptingu ríkisvalds. Þetta er virðingarleysi gagnvart Alþingi og gagnvart þeim eftirlitsstofnunum (Forseti hringir.) sem starfa á vegum Alþingis og við í þessum sal getum ekki setið þegjandi undir þessu. Við getum það ekki. (Forseti hringir.) Það verður að taka þetta til skoðunar.