152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

loftslagsmál.

[14:50]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Eftir að hafa hlustað á hæstv. ráðherra, bæði í dag og í gær, fæ ég pínulítið á tilfinninguna að hann líti á sig og ráðuneyti sitt meira sem einhvers konar áhorfanda en geranda þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er helst að ráðherra brenni fyrir fleiri og stærri virkjunum en eins og orkumálastjóri hefur bent á er ekki sjálfgefið að sú orka sem þar er renni beint inn í orkuskiptin. Það þarf mjög skýra stefnumótun, það þarf eitthvert heildstætt plan til að tryggja að svo verði. Þess vegna er vont að hæstv. ráðherra gefi okkur ekki mjög skýr svör um það hérna hvernig landsmarkmið Íslands í loftslagsmálum verði uppfærð, hvenær það gerist og hvort aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum verði endurskoðuð og hvernig þessi uppfærðu markmið muni birtast í stefnumörkun stjórnarinnar og aðgerðum yfirleitt. En vonandi nær hæstv. ráðherra að fara betur yfir það á eftir.

Í gær ræddum við um fólksbílaflotann og rafbílavæðinguna. Þá kom í ljós að ríkisstjórnin gerir enn ráð fyrir því að fólksbílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði fluttir inn til landsins allt til ársins 2030. Það eru bílar sem verða að óbreyttu enn á götunum árið 2040 en samt stendur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að árið 2040 eigi Ísland að vera orðið óháð jarðefnaeldsneyti. Þetta gengur bara ekki upp.

Ég ætla að vitna í hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„Ef betri árangur næst en núverandi markmið stjórnvalda segja til um væri ég fyrstur til að fagna því og þá getum við endurskoðað fyrri áætlanir.“

Eru þetta orð stjórnmálamanns sem brennur fyrir því að leiða Ísland inn í græna framtíð með byltingu í almenningssamgöngum og stórtækri áætlun um endurheimt votlendis? Nei, þetta eru orð einhvers sem ætlar að sitja og vona að hlutirnir reddist, fylgja í humátt á eftir tíðarandanum eins og stefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum hefur verið. Það sem við þurfum í loftslagsráðuneytið er baráttumaður eða baráttukona fyrir róttækum loftslagsaðgerðum sem (Forseti hringir.) getur virkjað samstöðu ungs fólks og þeirra sem eldri eru í alvöruaðgerðir (Forseti hringir.) í þágu loftslagsins, jarðarinnar og okkar allra og komandi kynslóða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)