staðfesting ríkisreiknings.
Virðulegi forseti. Ég þakka formanni hv. fjárlaganefndar fyrir þessa yfirferð og samstarfið í þessu máli. Mig langaði til að koma aðeins inn á nokkrar tölur sem urðu okkur ljósar við yfirferð ríkisreiknings, ef ég lít fram hjá tæknilegum atriðum sem er auðvitað nóg af. Þar kemur fram að fjárfestingar ársins 2020 námu um 50 milljörðum kr. en eftir sátu 40 milljarðar af samþykktum fjárheimildum. Þetta er ofboðslega há upphæð. Þar á undan höfðu tæplega 20 milljarðar verið til staðar frá fyrra ári. Nú ægir tölum saman um þessi blessuðu fjárfestingarátök. Það er rosalega erfitt að hafa yfirsýn yfir í hvað kemur hvenær og þessar tilfærslur milli ára gera að verkum að það getur verið mjög erfitt að átta sig á undirliggjandi slagkrafti fjárfestinga. Því hefur verið velt upp í nefndinni, m.a. af þeirri sem hér stendur, og fleiri nefndarmönnum hvort sé yfir höfuð bolmagn hjá hinu opinbera til að standa í svona átökum, hvort það sé hægt að fara í svona stór og mikil verkefni með litlum fyrirvara og hvort við ættum kannski að horfa aðeins öðruvísi á opinberar fjárfestingar, þær ættu að vera óháðari hagsveiflunni. Mig langar því að beina þeirri spurningu til hv. nefndarformanns hver sýn hennar er á lærdóminn af þessum fjárfestingarátökum ríkisstjórnarinnar og hvernig hefur gengið að koma fjármagni út í ljósi þess að við erum mögulega að sjá núna háar upphæðir detta inn eftir að hagsveiflan er komin af stað. Hverju þarf að breyta? Er yfir höfuð hægt að stunda hér þessar átaksbundnu fjárfestingar?