152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:26]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er einmitt eitt af því sem við höfum átakanlega orðið vör við núna, það er óhætt að segja það, hversu mikið hefur setið eftir og hversu lítið af öðru fjármagni komst í raunverulega vinnu, sérstaklega í því sem við ætluðum að setja fjármagn í, í vegakerfin okkar og svo sem víða annars staðar. Við erum búin að fá Vegagerðina í heimsókn og erum að fylgja því eftir með fyrirspurnum, m.a. frá hv. þingmanni, að nánari grein verði gerð fyrir því dálítið aftur í tímann hvernig þetta hefur verið. Ég held að þegar þær tölur verða komnar í hús þá getum við talað betur um þetta af því það hafa verið svona átök nokkrum sinnum en auðvitað snýr þetta dálítið að því að í þeim stóru framkvæmdum getur Vegagerðin ekki nema á grundvelli fjárheimilda verið tilbúin með einhver verkefni nema að litlu leyti, eins og kom fram á fundi okkar. Hvort þetta eigi að vera óháð hagsveiflunni er auðvitað líka spurning sem við þurfum að velta aðeins fyrir okkur þegar við höldum áfram þessari vinnu, hvort þetta eigi að vera fyrir utan reikninginn okkar eða hvað. Ég hef svo sem ekki myndað mér skoðun á því, hvort það eigi að vera, en það er umhugsunarefni þegar við erum að leggja fram svona mikla fjármuni, hvort samfélagið hafi bolmagn til að hrinda í framkvæmd í einhverjum einum geira eins miklu og var t.d. lagt upp með hér, eða hvort það hefði átt að vera í einhverjum fjölbreyttari framkvæmdum hugsanlega.