152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:28]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka formanni hv. fjárlaganefndar fyrir svarið. Ég ætla kannski aðeins að ganga á lagið fyrst við erum komin í þessa átt, um framtíðarmúsík, vegna þess að núna erum við að skoða ríkisreikninginn til að læra af fortíðinni og hvað við getum gert núna í framtíðinni og munum vonandi brátt taka fyrir fjármálastefnuna hér í þinginu. Nú liggur fyrir að þær afkomureglur og skuldareglur sem voru teknar úr sambandi í þessu ástandi munu að öðru óbreyttu detta með fullum þunga á opinberan búskap. Mögulega verða það svolítið heiftarlegar kröfur sem við þurfum að setja á hið opinbera í tengslum við þetta. Við vitum af sögunni að fjárfestingar hafa oft gefið eftir í svoleiðis aðstæðum. Núna er Evrópusambandið að skoða hina svokölluðu gullnu reglu í endurskoðun sinni á opinberum fjármálum þar sem hugmyndin er að undanskilja einmitt fjárfestingar frá afkomu- og skuldareglum. Þetta er til alvarlegrar skoðunar og íhugunar þarlendis vegna þess að þar hefur um árabil verið vanfjárfesting eins og hér á landi. Hugmyndin er sú að við lendum ekki í því alltaf þegar við ætlum að koma okkur af stað aftur að við förum í stopp í fjárfestingu. Mig langar til þess að beina þeirri spurningu í andsvari öðru sinni til hv. nefndarformanns fjárlaganefndar hvort það sé áhugi á að skoða þetta af alvöru, að fjárlaganefnd velti fyrir sér hvað Evrópusambandið er að gera og að þessar breytingar væru ekki bara teknar til skoðunar heldur að við myndum íhuga það alvarlega að breyta fjármálastefnunni núna fyrir komandi endurupptöku reglnanna.