152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:30]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg rétt varðandi afkomu- og skuldaregluna, af því að hún er í rauninni sett inn í lok tímabilsins, að við höfum rætt það í nefndinni og það hefur líka komið fram hjá fjármála- og efnahagsráðherra hvort það sé æskilegt að huga að því þegar nær dregur hvort hún þurfi að koma inn í einhverjum skrefum. Ég held að við eigum að vera mjög vakandi og með opin augu fyrir því að það geti þurft að gerast. Ég held að það sé ekki sjálfgefið að hitt geti gerst sisvona án þess að það verði skoðað með tilliti til afleiðinga. Ég var svo sem ekki heldur sammála því þegar þessi regla var sett á á sínum tíma og hef haft af henni áhyggjur og mér finnst það hafa dálítið sannað sig akkúrat núna. Ég tel því að við eigum að velta því fyrir okkur.

Varðandi gullnu regluna og það sem er að gerast hjá Evrópusambandinu þá held ég að þetta sé eitt af því sem við tökum væntanlega fyrir þegar við förum á hugarflugsfund varðandi endurskoðun laganna. Þetta er að sjálfsögðu eitt af því sem við getum rætt þar. Hvort við komumst að einhverri niðurstöðu um það, sameiginlegri niðurstöðu eða hvað, verður bara að koma í ljós. En ég held að við eigum alveg klárlega að velta því upp eins og hverju öðru. Það er ekkert sem mér finnst mæla gegn því. Það er bara margt sem við þurfum að skoða þar sem tekur mið af þeirri reynslu sem við höfum fengið hér í þinginu í vinnunni við lög um opinber fjármál.