152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:32]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Í endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning 2020 er fjallað sérstaklega um tækniskuld vegna gamalla upplýsingakerfa. Hér segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Upplýsingakerfi hjá mörgum ríkisaðilum í A-hluta eru komin til ára sinna, eru keyrð í gömlu tækniumhverfi og eru skrifuð í forritunarmálum sem yngri forritarar hafa takmarkaða þekkingu á. Eftir því sem forrit verða eldri, verða þau þyngri og kostnaðarsamari í endurbótum og viðhaldi.“

Svo er kallað sérstaklega eftir því að farið verði í „endurnýjun“ svo að ekki myndist aukin tækniskuld með verulegum kostnaði og áhættu fyrir ríkissjóð.

Hér á Alþingi hafa ófáar ræðurnar verið haldnar um samhæfingu hugbúnaðarlausna hjá hinu opinbera og um Stafrænt Ísland, sem manni virðist kannski að eigi að vera krúnudjásnið á ferli hæstv. fjármálaráðherra. Samt er það þannig núna að árið 2022, eftir öll þessi ár og alla þessa blaðamannafundi og fréttatilkynningar um Stafrænt Ísland, að ríkisendurskoðandi finnur sig knúinn til að vara okkur við því að hugbúnaði hins opinbera og upplýsingakerfum sé ekki viðhaldið, talar ekki bara um tækniskuld heldur að það verði aukin tækniskuld ef ekki verður farið í meiri endurnýjun.

Ég vil varpa þessari spurningu til hv. formanns fjárlaganefndar: Hvað er eiginlega verið að gera vitlaust? Hvers vegna er þetta svona áfram eftir allar þessar fjárfestingar í hugbúnaðarlausnum hins opinbera? Hvernig stendur á þessu?