152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Já, ég held að þetta sé eitthvað sem við þurfum að fá fjármálaráðuneytið til að leggja mat á. Ríkisendurskoðun gerir það ekki þannig að ég er alveg inni á því að þetta sé eitt af því sem við eigum að óska eftir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, kostnaðar- og áhættumati á þessari skuld, því að hún er sannarlega, eins og hér er sagt, til í kerfinu. Þrátt fyrir að Stafrænt Ísland sé þar sem það er núna heldur það auðvitað líka áfram að vaxa. En í sjálfu sér er þetta kannski fyrst og fremst það sem hægt er að gera í bili til að geta áætlað fyrir það inn í framtíðina og óskað eftir þessum svörum. Þetta er eitt af því sem ég var búin að reka augun í líka sem ég held að við þurfum að hafa í spurningum til ráðuneytisins. Nefndin á eftir að fjalla um einhverjar spurningar sem við þurfum klárlega að senda í framhaldi af þeirri vinnu og þekkingu sem við erum nú búin að öðlast og eignast í umfjöllun um þennan ríkisreikning. Það er mjög margt þarna undir sem er ekki skýrt. Bæði er það ekki skýrt af hálfu Ríkisendurskoðunar, ekki einu sinni afstaða til ákveðinna þátta að mínu mati, og líka af hálfu Fjársýslunnar og líka af hálfu fjármálaráðuneytisins. Ég tel því að þetta sé ein af þeim spurningum sem skipta mjög miklu máli því að þetta er jú það sem allt kerfið okkar gengur á. Það er stafrænt.