staðfesting ríkisreiknings.
Frú forseti. Við finnum það mjög áþreifanlega í þeirri nefnd sem ég sit í á Alþingi að það tekur margar vikur, jafnvel mánuði, að setja t.d. af stað umsóknarferli hjá Skattinum vegna ríkisstuðnings í tengslum við heimsfaraldurinn og sóttvarnatakmarkanir. Og þegar upp koma hugmyndir um að breyta frumvörpum sem koma frá ráðuneytinu þá er viðkvæðið svolítið þetta: Þá verður flækjustigið enn meira og þá mun þetta taka enn fleiri mánuði. Þetta finnst mér bara ofboðslega umhugsunarvert. Nú höfum við verið að díla við þennan heimsfaraldur í tvö ár. Við sáum það fyrst þegar faraldurinn nam hér land hvað það tók í raun langan tíma að keyra út bæði ríkisábyrgðarlán og styrki til fyrirtækja. Ég hef bara áhyggjur af stafrænum innviðum hins opinbera og það væri gaman að heyra hvort hv. formaður fjárlaganefndar sé ekki sammála mér (Forseti hringir.) um að gera þurfi enn betur þegar kemur að fjárfestingu í þeim.