staðfesting ríkisreiknings.
Frú forseti. Jú, ég er sammála því að það þarf að gera miklu betur þarna. Ég man í umræðunni hér, þegar við vorum að loka fjárlögunum, varðandi Tryggingastofnun t.d., að það tók marga daga. Nú veit ég ekki hvort það er vegna þess að tölvukerfið er lélegt eða hvort það er vegna einhvers annars. En það var augljóslega eitthvað sem þurfti marga daga til að vinna. Það kæmi mér ekkert á óvart að partur af því væri a.m.k. vegna þess að innviðirnir eru orðnir nokkuð gamlir eða tala ekki nógu vel saman. Ég held að þetta sé svona víða út um kerfið. En það hefur batnað, sannarlega hefur það batnað mjög víða og við skulum ekkert gera lítið úr því. En þessi ábending ríkisendurskoðanda gefur okkur tilefni til að fylgja þessu eftir og það munum við gera í fjárlaganefnd og ég treysti því að félagar mínir standi með mér í því.