152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:38]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er tiltölulega óhefðbundið mál hérna inni í þingsal, ríkisreikningur. Þetta er búið og gert. Við erum að skoða hvernig fjárheimildum var eytt og þetta er endapunkturinn í því langa ferli sem stefnumörkun í fjármálum hins opinbera er, sem byrjar í rauninni dálítið á grunnri langtímastefnu eða skýrslu um langtímahorfur. Síðan tekur við fjármálastefnan sem kemur með rammann fyrir kjörtímabilið og rétt rúmlega, fjármálaáætlun þar sem stefna stjórnvalda á að koma fram, fjárlögin síðan sem útfæra stefnuna, ársskýrslan sem útskýrir hvernig tókst nú til þegar allt kom til alls og svo að lokum ríkisreikningurinn. Í því samhengi er það áhugavert að við skulum fá ríkisreikninginn til umræðu á þingi en ekki t.d. ársskýrsluna því að þar er einmitt verið að ræða stefnu stjórnvalda. Þess vegna finnst mér áhugavert, eins og stendur í áliti meiri hlutans, að niðurstaða endurskoðunarinnar sé sú að rekstur ríkissjóðs hafi gengið vel í öllum aðalatriðum á árinu 2020 þrátt fyrir áföll af völdum Covid-19 heimsfaraldursins. Eiginfjárstaðan sé þó lakari en það sé af völdum veirunnar. Ég trúi því bara ekki alveg, ég verð að segja það, af því að ég hef spurt hvað lögbundin verkefni kosta, þau verkefni sem við erum að setja lög um að framkvæmdavaldið sinni og veita fjárheimildir fyrir, og þau vita ekki hvað það kostar. Ef við vitum ekki hvað það kostar að uppfylla ákveðin réttindi sem við erum að samþykkja hérna samkvæmt lögum, hvernig vitum við að reksturinn hafi verið góður?