152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er sannarlega rétt að hér erum við að setja lokapunktinn við árið 2020 að undangengnu því sem hv. þingmaður fór yfir áður, þ.e. stefnuna, áætlunina og fjárlögin og því er svo lokað með ríkisreikningi og síðan eru þessar ársskýrslur eins og hv. þingmaður nefndi, sem hafa reyndar legið niðri núna um tíma, því miður. Við þurfum einmitt að stjaka aðeins við því líka. Þannig að það eru svo sem næg verkefni að ýta við framkvæmdarvaldinu og stofnunum þess að mínu mati. Reksturinn gengur vel. Auðvitað má alveg vera með hártoganir en hann gengur vel vegna þess að það eru til nægar eignir fyrir skuldum að mati ríkisendurskoðanda. Það er þannig sem hann setur þetta upp. Væntanlega er hann þá að ganga út frá þeim tölum sem koma fram í reikningnum. Hann getur auðvitað ekkert annað gert þar sem stofnanir skila sínum reikningum út frá þeim áætlunum sem þær höfðu gert í upphafi og á því byggir hann sína niðurstöðu. Það er ekkert hægt að gera að öðru leyti. Það að við þingmenn teljum að eitthvað sé ekki vel rekið eða nægjanlegt fé sett í það er svo bara annar hlutur. Þetta er það sem fjárlögin heimila hverju sinni og á því byggir ríkisreikningurinn. Hann getur aldrei byggst á öðru en fjárlögunum að teknu tilliti til þess þegar búið er að fara í gerð og skoðun á þessum reikningum. En svo vil ég bara segja, af því að hér vorum við að tala um innri endurskoðeun og stóru stofnanirnar okkar, að ég held að því verðum við að koma áleiðis.