152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt þess vegna sem við setjum allt þetta, langtímahorfur, stefnuáætlun, fjárlög, ársskýrslur og allt þetta, til þess að átta okkur á umfangi verkefnanna. Þar á að vera kostnaðarmat og ábatagreining sem er ekki. Þar á að vera forgangsröðun o.s.frv. sem er grunnurinn að því að leggjast yfir það í rauninni hvort rekstrinum hafi gengið vel eða ekki, samkvæmt áætlun. Við erum ekki með neina áætlun. Við erum bara með skot út í loftið um það hvað brauð kostar. Svo borðum við allt brauðið og segjum: Vei, hungursneyðinni er aflétt. En hversu marga vorum við að fæða með brauðhleifnum? Voru miklu fleiri sem þurftu miklu meira en einn brauðhleif? Það er ekkert mat á að hvort það hafi gengið vel með því að brauðhleifurinn kláraðist. Það stendur í ábendingum meiri hluta fjárlaganefndar að brýnt sé að endurmeta alla verkferla við gerð reikningsins. Mér finnst þetta svolítið stór ábending ef ég á að segja eins og er.