152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Pólitíkin stendur frammi fyrir því að svara þeim spurningum sem hv. þingmaður kom með en ekki ríkisendurskoðandi. Umfangið birtist auðvitað í fjárlögum, umfang hverrar stofnunar fyrir sig, eins og við þekkjum, og það er það sem reikningurinn byggist á. Hvort við sem þingmenn teljum að það sé ekki nóg til eða það sé ekki búið að brauðfæða allan heiminn, eins og hv. þingmaður nefndi áðan, eða þá sem þess þurfa er eitthvað sem við þurfum að svara. Ríkisendurskoðandi skoðar reikninginn bara út frá þeim fjárlögum sem við setjum á hverju ári. Ég held að ég geti ekki verið neitt skýrari varðandi það að skoða alla verkferla. Já, ég held að það sé bara ágætt að við leggjumst yfir það. Kannski þarf ekki að breyta nema einhverju örlitlu eða fáu. Ég held að það sé kannski samt sem áður ýmislegt sem gefur til kynna að það sé bara gott mál að fara dálítið vel í gegnum (Forseti hringir.) vinnuferlið og þessar ábendingar og annað slíkt sem við sjáum í skrifum ríkisendurskoðanda í þessari skýrslu.