152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[15:45]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Smá samhengi til að byrja með um lög um opinber fjármál. Hér voru áður lög um fjárreiður sem horfðu alltaf svo þröngt á rekstur ríkisins, eitt ár í senn, að sett var í annan gír til þess að reyna að losa stjórnmálin og ýmsa aðra úr ákveðnum freistnivanda sem raungerist þegar horft er til skamms tíma í senn. Lög um opinber fjármál voru sett til að hvetja til stefnumörkunar, hvetja til faglegrar vinnu um það hvernig fjármál hins opinbera væru sett fram til að efla ákveðna rýni og gagnsæi í meðhöndlun fjárheimilda almennings. Grunnurinn þar er langtímaskýrsla um efnahagshorfur sem sýnir okkur þróun mannfjölda og raforku og ýmiss konar hagstærða og hvernig þær munu þróast á næstu árum og hvernig stjórnmálin þurfa að taka ákvörðun um hvernig eigi að bregðast við. Úr því er síðan unnin fjármálastefna og sérstaklega fjármálaáætlun.

Það er dálítill ruglingur þarna á milli en fjármálastefna er eitt og fjármálaáætlun annað. Í fjármálaáætlun birtist stefna stjórnvalda, ekki í fjármálastefnunni. Það er ruglandi. Í fjármálaáætluninni kemur fram að stjórnvöld ætli að gera eitthvað ákveðið til þess að leysa einhvern vanda. Til að leysa þann vanda eiga stjórnvöld að leggja fram rökstuðning fyrir því að það sé vandi til að byrja með og hvaða leiðir séu mögulegar til að leysa hann. Síðan veljum við úr þeim lausnum, eða stjórnvöld gera það og leggja þær fyrir þingið og segja að sú lausn sem valin er af þeim kostum sem við höfum sé hagkvæmust og best að öllu leyti. Þar geta verið pólitískar ákvarðanir um það hvað telst hagkvæmt og hvað ekki. Með þeim rökum er síðan aflað stuðnings í fjárlögum á hverju ári samkvæmt kostnaðaráætlun og ábatagreiningu sem fylgja þessari valkostagreiningu hjá stjórnvöldum í stefnumótun þeirra. Gerð er grein fyrir því hvaða árangri stefnumótun stjórnvalda skilar í ársskýrslum ráðherra, sem við fáum einhverra hluta vegna ekki að ræða nánar í þingsal. Við getum örugglega krafist þess, það væri örugglega ekki svo mikið mál og örugglega áhugavert. Eins og er þá er ekkert af þessu gert.

Ársskýrslur ráðherra eru alveg gagnslaus pappír. Þær eru í rauninni ákveðið sjálfsmat því að viðmiðin eru svo ónákvæm. Það er bara hægt að segja: Okkur tókst að gera þetta rosalega vel, án þess að það sé í rauninni satt. Við höfum ekki hugmynd um það af því að það er bara ágiskun.

Mér líður dálítið þannig með ríkisreikninginn því að þó að hann sé einmitt, eins og kom fram í andsvörum áðan, byggður á þeim fjárheimildum sem voru samþykktar þá höfum við ekki hugmynd um hvort þær fjárheimildir uppfylli þau lög sem við höfum sett framkvæmdarvaldinu að fylgja, t.d. lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu. Við höfum ekki hugmynd um hver væntur kostnaður við þau réttindi sem fylgja þeim lögum er í raun og veru. Samt fáum við — núna koma alltaf lagabreytingar vegna laga um opinber fjármál — kostnaðarmat á öllum lagabreytingum. En við erum ekki með upplýsingarnar um heildarkostnaðinn fyrir hver lög fyrir sig. Það er eitthvað sem við ættum að hafa og ætti að vera grundvöllur þeirra fjárlaga sem eru sett hverju sinni því að ofan á þennan grunnrekstur ríkisins kemur síðan stefnumótun stjórnvalda sem snýst um að hnika einhverju til varðandi lagabreytingar til þess að gera eitthvað skilvirkara eða til þess að fara í fjárfestingarátak út af efnahagskreppu eða eitthvað slíkt. Grunnurinn er aðallega skoðaður í ríkisreikningnum og við höfum í rauninni rosalega litla hugmynd um það hvernig hann er uppbyggður því að það vantar algjörlega eitthvað sem kallast endurmat útgjalda í þessu apparati.

Ég flyt hér nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar sem undir rita ég og hv. þingmenn Kristrún Frostadóttir og Eyjólfur Ármannsson. Áheyrnarfulltrúi í nefndinni, Guðbrandur Einarsson, skrifar undir sem samþykkur þessu áliti.

Samkvæmt lögum um opinber fjármál segir um staðfestingu ríkisreiknings að ráðherra skuli leggja fram frumvarp á Alþingi til staðfestingar á ríkisreikningi. Í greinargerð með frumvarpinu skal fjalla um niðurstöðutölur reikningsins og gera grein fyrir frávikum tekna, útgjalda og lánamála með samþykktum heimildum Alþingis. Í frumvarpinu er farið yfir þessi mál en umfjöllunin tekur að nokkru til séryfirlita sem minni hlutinn mun gera nánar grein fyrir. Þá kemur fram uppgjör samkvæmt GFS-stöðlum sem eru á grunni þjóðhagsreikninga en það uppgjör er hvorki endurskoðað af Ríkisendurskoðun né öðrum endurskoðendum. Minni hlutinn telur að finna þurfi því uppgjöri endurskoðunarfarveg eins og skylt er með ríkisreikning til að tryggja gæði þess.

Í lögum um opinber fjármál, 56. gr., kemur fram um gerð ríkisreiknings hvað hann skuli innihalda. Því til viðbótar koma fyrirmæli í svokölluðum IPSAS-reikningsskilastöðlum, sem eiga að fylgja líka. Þar segir m.a. að innan sex mánaða frá árslokum skuli ráðherra birta ríkisreikning sem nær yfir fjárreiður A-, B- og C-hluta ríkissjóðs.

Reikningurinn var áritaður af fjármála- og efnahagsráðherra og fjársýslustjóra 29. júní 2021 sem og af ríkisendurskoðanda. Má því segja að frestur til að birta reikninginn hafi verið fullnýttur, hálft ár, eins og hefur verið venja frá þeim tíma sem lögin tóku gildi. Minni hlutinn telur mikilvægt að uppgjöri verði framvegis hraðað þannig að reikningurinn komi út á svipuðum tíma og ársreikningar helstu fyrirtækja í Kauphöllinni. Þannig gæfist Alþingi færi á að ljúka umfjöllun um hann á vorþingi í stað þess að hún dragist fram eftir árinu, hvað þá fram á næsta ár, eins og staðan er nú. Þá kom endurskoðunarskýrsla Ríkisendurskoðunar út í september 2021 en minni hlutinn telur að sama skapi eðlilegt að hún komi út um svipað leyti og ríkisreikningur — það er hægt að vinna hluti samhliða hérna — þannig að umfjöllun um hana geti einnig verið lokið á vorþingi og þá helst fyrir afgreiðslu fjármálaáætlunar næstu ára, svo að ákveðin samfella sé í því hvernig tölurnar raðast hérna.

Ríkisreikningur skal settur fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti ríkisreiknings nær yfir fjárreiður A-hluta ríkisins og hann skal innihalda — og svo kemur nokkur upptalning sem er beint úr lögum um opinber fjármál:

Fyrsta atriðið eru reikningsskil fyrir síðasta fjárhagsár, gerð á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila. Í innleiðingarstaðlinum er heimild til að innleiða alla staðlana á þremur árum. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur nýtt þá heimild og auk þess fengið heimild frá reikningsskilaráði ríkisins samkvæmt 52. gr. laga um opinber fjármál til að fresta fullri innleiðingu um allt að fimm ár frá og með árinu 2021. Frá því að ný lög um opinber fjármál voru sett gætu því hafa liðið allt að tíu ár þar til ríkisreikningur verður að fullu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila. Minni hlutinn telur þetta allt of langan tíma og hvetur fjármála- og efnahagsráðherra til að láta bæta úr þessum hægagangi án tafar, enda á að fara eftir lögum eins og hann hefur lagt áherslu á undanfarna daga. Þeir staðlar sem hafa ekki verið innleiddir eru fimm staðlar um leigusamninga, samstæðureikningsskil fjárfestingar í hlutafélögum og sameiginlegum verkefnum að hluta, um samrekstur og um upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum.

Á bls. 30 í ríkisreikningi koma fram áhrif þess á ríkisreikning að innleiðingu fyrrgreindra staðla hefur verið frestað. Einnig kemur fram í áritun ríkisendurskoðanda að gerð sé efnisleg grein fyrir áhrifum þess á ríkisreikninginn og ástæðum þess að innleiðingu sé frestað. Minni hlutinn telur fyrrgreindar skýringar ekki nógu nákvæmar þar sem töluleg gildi vantar í skýringarnar. Notað er almennt orðalag sem gefur ekki nægilega glögga mynd af áhrifunum, samanber eftirfarandi skýringar í ríkisreikningi.

Um leigusamningana. Frestun á innleiðingu þessa staðals hefur óveruleg áhrif á reikningsskil núna en búast má við að nýr staðall þýði töluverðar breytingar á meðferð leigusamninga líkt og gerst hefur við innleiðingu samsvarandi IFRS-staðals.

Í IPSAS-staðli um samstæð reikningsskil: Áhrif af þessari frestun eiga ekki að vera mikil á afkomu ríkissjóðs en verða veruleg á eignir og skuldir þar sem eignir og skuldir B- og C-hluta aðila koma að fullu inn í samstöðu ríkissjóðs í heild.

Varðandi fjárfestingar í hlutafélögum og sameiginlegum verkefnum að hluta stendur: Ekki liggur fyrir hver áhrifin eru á reikningsskil ríkisins en ekki er gert ráð fyrir að þau séu veruleg. Þetta er áhugavert.

Um samrekstur. Ekki liggur fyrir hver áhrifin eru á reikningsskil ríkisins en ekki er gert ráð fyrir að þau séu veruleg. Þarna er það sama og á undan og eins með upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum; áhrif fræðslunnar eru engin á efnahag og rekstur heldur hefur áhrif á upplýsingagjöf í ríkisreikningi, sem maður myndi halda væri dálítið mikilvægt.

Þetta er áhugavert, sérstaklega miðað við að við spurðum Ríkisendurskoðun um þetta, t.d. varðandi sérálitin sem eru ekki endurskoðuð heldur. Í svari Ríkisendurskoðunar sem barst fjárlaganefnd kemur fram að séryfirlit séu brotin niður á málaflokka og fjárlagaliði og að endurskoðun þeirra yrði því mjög tímafrek en breytti litlu um meginniðurstöður ríkisreiknings. Mér finnst dálítið skringilega orðað að þetta sé tímafrekt og breyti litlu þegar það á samt að gera þetta, mjög spes allt saman.

Í áritun ríkisendurskoðanda segir: „Með vísan til samþykktar reikningsskilaráðs um heimild til frestunar og ábendinga í áritun er það álit ríkisendurskoðanda að ríkisreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu ríkissjóðs 31. desember 2020, afkomu ríkissjóðs árið 2020 og breytingu á handbæru fé á árinu 2020 í samræmi við lög nr. 123/2015 um opinber fjármál. Auk þessa fylgja ríkisreikningi séryfirlit nr. 1–16 en þau eru ekki endurskoðuð.“

Eins og minni hlutinn mun gera grein fyrir telur hann að endurskoða hefði átt a.m.k. hluta séryfirlitanna þar sem upplýsingar sem koma fram í þeim eru hluti ríkisreiknings samkvæmt skilgreiningu í 56. gr. laganna.

Annað atriði sem á að koma fram í ríkisreikningi er framsetning og flokkun samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli um opinber fjármál. Í endurskoðunarskýrslunni er vakin athygli á því að misræmis gætir um flokkun á starfsemi og verkefnum á milli þess sem kveðið er á um í 50. gr. laga nr. 123/2015 og ákvæða í IPSAS. Ríkisendurskoðun bendir á að eyða þurfi misræmi þannig að ótvírætt sé að farið verði að þeim grundvallarreglum sem kveðið er á um í alþjóðlegum hagskýrslu- og reikningsskilastöðlum. Minni hlutinn tekur undir með Ríkisendurskoðun.

Það þriðja sem á að birtast í ríkisreikningi eru reikningstölur með samanburði við ráðstöfunarheimildir reikningsársins, fjárlög og reikningstölur næstliðins árs. Á bls. 9 í reikningnum segir: „Í lögum um opinber fjármál er þannig gert ráð fyrir að reikningstölur séu birtar með samanburði við ráðstöfunarheimildir reikningsársins, fjárlög og reikningstölur næstliðins árs. Í þessum reikningi eru birtar samanburðartölur við fyrra ár en í fjárlögum og fjáraukalögum eru fjárheimildir ekki birtar á sama grunni og reikningsskilastaðlarnir eru. Ekki er birtur rekstrarreikningur í fjárlögum og því ekki hægt að birta þær samanburðartölur nú. Í yfirliti um útgjöld málefnasviða er birtur samanburður við fjárlög, enda eru þær fjárheimildir samþykktar af Alþingi og koma fram í fjárlögum og fjáraukalögum ársins 2020. Þá er í séryfirlitum sömuleiðis birtur samanburður ríkisaðila í A-hluta við fjárheimildir.“

Minni hlutinn telur að þann samanburð hefði átt að birta í ríkisreikningi og þessar upplýsingar sé hægt að útbúa þannig að samanburðurinn geti farið fram. Þá bendir minni hlutinn á að séryfirlitin eru ekki endurskoðuð sem er óheppilegt þar sem þau eru gefin út sem hluti af ríkisreikningi eins og fyrrgreindar skýringar hans bera með sér.

Fjórða atriðið sem á að birtast í ríkisreikningi er flokkun og ráðstöfun fjárheimilda eftir uppruna þeirra. Einnig kemur fram á bls. 9 í ríkisreikningi að flokkun og ráðstöfun fjárheimilda eftir uppruna þeirra sé birt í séryfirliti 5 í seinni hluta ríkisreiknings. Þar er flokkunin eftir ríkisaðilum í A-hluta sem eru þau uppgjör sem ríkisreikningurinn byggist á. Séryfirlitið er í fjórum hlutum, sem skiptist eftir málefnasviðum og málaflokkum niður í rekstur og fjárfestingu og síðan niður á ríkisaðila í A-hluta eftir rekstri og fjárfestingu. Minni hlutinn bendir á að yfirlitið er óendurskoðað.

Það fimmta sem á að birtast er millifærsla fjárveitinga innan málaflokks sem samþykktar hafa verið og birtar. Á bls. 10 segir m.a.: „Millifærslum fjárveitinga innan málaflokka er gerð grein fyrir í séryfirliti 6 í seinni hluta ríkisreiknings.“ Minni hlutinn bendir á að yfirlitið er óendurskoðað.

Það sjötta sem á að birtast í ríkisreikningi eru sundurliðuð yfirlit um helstu flokka eigna og skulda í efnahag A-hluta ríkissjóðs í heild. Sundurliðuð yfirlit um helstu flokka eigna og skulda í efnahag A-hluta ríkissjóðs í heild er að finna í skýringum með ársreikningnum sem sundurliða þær eignir og skuldir sem liggja til grundvallar stærðum í efnahagsreikningi. Þarna er allt sem á að vera samkvæmt bókinni.

Sjöunda atriðið sem á að birta er yfirlit sem sýni tekjur ríkissjóðs af nýtingu auðlinda í ríkiseigu og vegna takmarkaðra réttinda sem stjórnvöld ráðstafa. Á bls. 10 segir m.a.: „Yfirlit sem sýni tekjur ríkissjóðs af nýtingu auðlinda í ríkiseigu og vegna takmarkaðra réttinda sem stjórnvöld ráðstafa er ekki birt. Unnið er að því að skilgreina hvað á að falla hér undir og ná saman viðeigandi upplýsingum.“

Minni hlutinn bendir á að nokkuð er um liðið síðan lög um opinber fjármál tóku gildi og því ætti yfirlitið að mati hans að liggja fyrir.

Hérna væri mjög áhugavert að fara að spjalla svolítið um sjávarútvegskerfið, kvótakerfið, og nýtingu auðlinda þar á, en þar fær ríkissjóður nettó 500 milljónir á ári eftir kostnað af veiðigjöldum, af þeirri auðlind, merkilegt nokk miðað við allan annan pening sem er í því kerfi allra.

Áttunda atriðið er að sundurliðað yfirlit um skattstyrki, sem eru ekki eru útborganlegir, skal sýnt sérstaklega í tekjuyfirliti. Á bls. 10 segir m.a.: „Sundurliðað yfirlit um skattstyrki sem ekki eru útborganlegir er birt sem séryfirlit 10 í seinni hluta ríkisreikningsins. Það er sambærilegt við yfirlit sem birt er í fjárlögum hvers árs.“

Minni hlutinn bendir á að yfirlitið er óendurskoðað, eins og áður hefur komið fram.

Aðrar athugasemdir sem minni hlutinn gerir eru að seinni hluti ríkisreiknings skal innihalda samandregnar upplýsingar um fjármál ríkisaðila og lykiltölur úr ársreikningum ríkisaðila í A-, B- og C-hluta. Samhliða birtingu ríkisreiknings hverju sinni skal Fjársýsla ríkisins birta opinberlega ársreikninga einstakra ríkisaðila í A-, B- og C-hluta.

Minni hlutinn bendir á að samráð hefur ekki farið fram um það hvaða upplýsingar eru gagnlegar fyrir fjárveitingavaldið til að sinna eftirlitshlutverki sínu með framkvæmd fjárlaga. Þannig birtast einungis þær upplýsingar sem framkvæmdarvaldið telur gefa glögga mynd af fjármálum ríkisaðila. Slíkt sjálfsmat á því hvað teljist vera gagnlegar upplýsingar er ekki viðunandi.

Að lokum aðeins um yfirsýn yfir stöðu framkvæmda, nýtingu fjárheimilda í tengslum við fjárfestingar, Landspítala og Vegagerðina. Fram kemur í áliti ríkisendurskoðanda að sérstakt sé að ekki sé innri endurskoðandi á Landspítalanum í ljósi umfangs starfseminnar. Að sama skapi hafi skil Vegagerðarinnar á ársreikningi verið í ólagi. Það vekur athygli í ljósi þess að yfirgnæfandi meiri hluti samþykktra fjárfestingarheimilda rennur til Landspítalans annars vegar, í tengslum við byggingu nýs sjúkrahúss, og Vegagerðarinnar hins vegar, vegna samgangna, og illa hefur gengið að nýta slíkar heimildir. Tafir hafa verið á framkvæmdum og erfitt að ýta framkvæmdum úr vör að því er virðist. Því hefur minni hlutinn lýst yfir áhuga á því að fá greiningu á fjárfestingargetu opinberra aðila þegar kemur að „átaksfjárfestingum“. Ljóst er að bæta þarf úr verklagi og telur minni hlutinn brýnt að Vegagerðin skili ársreikningi á réttum tíma og að skoðað verði hvort ekki sé við hæfi að koma á innri endurskoðun á Landspítalanum.

Þar með lýkur sameiginlegu nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar.

Það er áhugavert að skoða Landspítalann í þessu samhengi og núna þá nýju risaframkvæmd sem hefur verið í gangi við Hringbraut. Þegar efnahagurinn fór að ná hinni svokölluðu mjúku lendingu, eins og sumir stjórnarliðar orðuðu það þá, varð hlé á framkvæmdum við holuna sem var þá komin vegna aðstæðna sem kannski stóðust skoðun — kannski — því það var hægt að gera mikið annað á sömu lóð. Það var hægt að framkvæma ýmislegt annað á sama tíma en það var einfaldlega ekki gert. Alla vega bendir allt það sem ég hef skoðað til þess að framkvæmdum hafi einfaldlega verið frestað og fundin fyrir því tylliástæða, að það hafi orðið einhverjar tafir, í staðinn fyrir að það hafi í raun og veru verið ákvörðun að fresta. Mér finnst alvarlegt þegar stjórnvöld haga sér þannig og tel að það sé nokkurn veginn ómögulegt, því miður, að komast að því hvernig sú ákvörðun var í raun og veru tekin. Miðað við það sem ég hef fengið fram í samtölum við framkvæmdaraðila bara með því að labba inn á svæðið og spyrja: „hvað er í gangi hérna?“ þá var hægt að halda áfram öðrum framkvæmdum innan svæðisins en þeim sem sett var pása á. Það eru svo sem allar heimildirnar sem ég hef um þetta. Ég hef enga ástæðu til að vefengja þá aðila sem sögðu þetta við mig, enga. Ég get ekki annað en spurt stjórnvöld: Af hverju var sett pása á byggingu Landspítalans við Hringbraut? Ég held að það hafi verið á árinu 2020, ef ekki 2019 líka, í kjölfar þess að það kom smá bremsa á efnahagskerfið og það þurfti að samþykkja nýja fjármálastefnu út af falli eins flugfélags og aflabrests á loðnu.

Þetta er staðan sem við erum í með ríkisreikninginn. Þetta er jú skoðun á þeim fjárheimildum sem Alþingi samþykkir en vandinn sem við glímum við er að við vitum ekki hvað þær fjárheimildir þýða. Þó að Ríkisendurskoðun komi og segi að hérna hafi verið samþykktir 50 milljarðar og þarna notaðir 50 milljarðar eða 40 eða hvað sem það er, þá þýðir það í rauninni ekki neitt fyrir okkur nema það að fjárheimildirnar voru notaðar. Spurningin sem við eigum alltaf að spyrja er: Af hverju þurfti akkúrat þessar fjárheimildir, ekki meira eða minna? Því er aldrei svarað. Samkvæmt lögum um opinber fjármál á að svara því með stefnu stjórnvalda þar sem á að liggja fyrir kostnaðaráætlun, ábatagreining, valkostagreining og forgangsröðun. Það á allt að liggja fyrir. Við fáum það aldrei. Einungis með því að hafa þetta í hendi, samkvæmt lögum um opinber fjármál, getum við lagt mat á það hvort stefna stjórnvalda sé að skila okkur í jákvæðari átt en aðrar hugmyndir buðu upp á. Einungis þannig getum við komist að því ef sviðsmyndagreiningar okkar voru einfaldlega rangar — sem gerist, það er fínt. Forsendurnar stóðust ekki og þá höfum við tíma til að segja: Heyrðu, þetta er ekki nógu gott, stokkum þetta upp áður en við erum komin í sokkinn kostnað og breytum, gerum þetta öðruvísi, af því að það er hagkvæmara til lengri tíma. Maður sér það t.d. með Landspítalabygginguna, staðsetningin á henni er stórkostlega skrýtin. Það var aldrei útskýrt af hverju þetta væri hagkvæm staðsetning, af því að engin valkostagreining lá fyrir, alvöruvalkostagreining. Fyrsta valkostagreining sem var gerð var gerð um síðustu aldamót. Þá átti að velja milli þriggja staða; við Hringbraut, í Fossvogi eða einhvers staðar annars staðar. Niðurstaðan var: Ef ekki einhvers staðar annars staðar þá í Fossvogi. Þá þurfti að gera nýja valkostagreiningu því að hún var greinilega ekki það sem stjórnvöld vildu. Þá átti að bæta inn í greininguna jákvæðum hvötum við að hafa spítalann nálægt miðbæ og nálægt háskólanum. Þá fékk Hringbraut allt í einu nægilega mikið vægi til að vera góð staðsetning fyrir Landspítala.

Þetta var hönnuð niðurstaða, pöntuð skýrsla eins og það hefur oft verið kallað. Þetta eru einu rökin sem maður fær fyrir því að Hringbraut hafi verið góð staðsetning upp á aðgengi fyrir alla sem vilja nýta sér Landspítalann. Talað er um nálægðina við flugvöllinn. Það eru ekki nógu góð rök, hann væri ekkert langt í burtu þótt spítalinn væri ofar í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu. Og ef hann væri einmitt ofar á höfuðborgarsvæðinu þá væri aðgengi fyrir nærliggjandi sveitarfélög, Suðurnesin alveg upp í Borgarfjörð og Akranes, miklu betra og vegalengdin styttri. Það þyrfti ekki að renna í gegnum kraðakið sem er niðri í miðbæ sem er búið að hanna á þann hátt að það myndast flöskuháls, af því það er svo rosalega erfitt að glíma við Vegagerðina, sem á vegina, Miklubraut, Bústaðaveg, sem stýrir allri þessari umferð, og ýmislegt annað.

Það er ágætt að fjalla um ríkisreikning en ég tel að stærri spurningarnar um það af hverju fjárheimildir eru þær sem þær eru séu eitthvað sem við þurfum að einbeita okkur meira að og svara betur. Þá getum við líka fjallað betur um ríkisreikninginn þegar allt kemur til alls, af því að við vitum hvaða fjárheimildir við erum að tala um í tengslum við þau lög og þjónustu og réttindi sem við erum að samþykkja hérna í stærra samhengi með lögum fyrir Íslendinga.