staðfesting ríkisreiknings.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara í andsvar í eiginlegum skilningi en mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega framsögu minnihlutaálits um staðfestingu ríkisreiknings. Ég heyrði að hann minntist á Reykjavíkurflugvöll í lokin og nýja byggingu Landspítalans. Ég ætla ekki að fara að tala um það, en mig langar rosalega að tala um það. En það er alveg augljóst, og ég las skýrslurnar á sínum tíma, að það átti að byggja nýjan Landspítala á lóð Borgarspítalans, þar er pláss frá Nýbýlavegi að útvarpshúsinu, gríðarlegt landflæmi og æðisleg staðsetning, en það voru önnur sjónarmið á bak við. Ég las skýrslurnar, þær voru alveg kolrangar og það stóð aldrei neitt um það en ég veit að þetta var út af Reykjavíkurflugvelli. Ég er mikill stuðningsmaður Reykjavíkurflugvallar en það er varla hægt að minnast á hann ógrátandi.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, þar sem hann er reyndur í fjárlaganefnd, um tíma framlagningar á staðfestingu ríkisreiknings. Núna erum við að fjalla um ríkisreikning fyrir árið 2020 og mér finnst þetta gríðarleg sagnfræði. Hv. þingmaður minntist á að það ætti að leggja hann fram eins og aðra ársreikninga að vori. Í fyrsta lagi: Er ekki örugglega auðvelt að gera það í framkvæmd, þá vísa ég til reynslunnar? Í öðru lagi: Ætti þá ekki bara að hafa lagaskyldu til þess? Í þriðja lagi tel ég að minni hlutinn ætti í það minnsta að krefjast þess að staðfesting ríkisreiknings fyrir árið 2021 verði lögð fyrir nú í vor. Ég skal segja af hverju. Áritun ríkisendurskoðanda á ríkisreikningi fjallar um það að við erum núna með glögga mynd af fjárhagsstöðu ríkissjóðs fyrir árið 2020. Við höfum ekki fengið neina vottun um fjárhagsstöðu ríkissjóðs fyrir síðasta ár. Ég vil bara ítreka hvað það væri mikilvægt upp á umræðu um ríkisfjármálin. Ég tel að við ættum að sameinast um það, í góðri samvinnu við meiri hlutann (Forseti hringir.) og fjárlaganefnd í heild, að ríkisreikningur verði lagður fram á réttum tíma og það yrði þá að vori árið eftir (Forseti hringir.) og þá fáum við vonandi að sjá ríkisreikning fyrir síðasta ár í vor.