152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:14]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Mér finnst þessi hálfsársfrestur vera allt of langur. Við töluðum þó nokkuð oft um þetta bil, að það væri allt of seint að gera eitthvað í þessu. En það hefur ekkert gerst enn þá. Ég veit ekki hvað er verið að reyna að gera. Niðurstaðan er alla vega ekki eftir kölluninni. Þessi ríkisreikningur og endurskoðunarskýrsla kemur náttúrlega á þeim tíma að við hefðum fjallað um hann í haust ef kosningar hefðu ekki verið á svona furðulegum tíma. Það er annað sem við þurfum að skoða, ef þetta á að vera kosningadagsetningin til frambúðar virkar ekki að fjárlög séu lögð fram og samþykkt að hausti til. Þá er það alveg galið. Þá þurfum við að gera eins og aðrar Norðurlandaþjóðir gera, held ég, og samþykkja fjárlög næsta árs að vori. Þar eru kosningar að hausti. Það er tímasetningin sem ég sé í þessu. Við verðum að hafa samfellu í þessu og geta lokið fyrra ári áður en við byrjum að skoða hvernig næsta ár liggur. Er eitthvað sem ætti að vera sjálfsagt? Og við byrjum að skoða hvernig ramminn fyrir næsta ár er í fjármálaáætlun sem á að leggja fram í byrjun apríl og er þá afgreidd í maí eða júní eða eitthvað því um líkt. Þá ættum við einmitt að vera búin að fá ríkisreikning til að sjá á hvaða grunni fjárheimildir næsta árs koma til með að byggjast, t.d. varðandi tilfærslur fjárheimilda vegna ýmissa atriða eins og komið var inn á áðan.