152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

staðfesting ríkisreiknings.

161. mál
[16:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Það er margt að læra þegar maður kemur nýr inn á þing. Fyrir mig sem nefndarmann í efnahags- og viðskiptanefnd og sem áheyrnarfulltrúa í fjárlaganefnd hefur tími til aðlögunar verið bæði stuttur og snarpur. Við þurftum að samþykkja fjárlög með mjög stuttum fyrirvara. Síðan hafa vinnumarkaðsaðgerðir til stuðnings fyrirtækjum komið á færibandi inn í efnahags- og viðskiptanefnd til úrvinnslu. Að fá svokallaðan ríkisreikning fyrir árið 2020 inn á borð fjárlaganefndar á þessum tímapunkti þykir mér kúnstugt. Það er eins og það gildi ekki sömu ákvæði fyrir ríkisvaldið og gilda fyrir sveitarfélögin. Sveitarfélög þurfa að taka fjárhagsáætlanir sínar til umræðu og afgreiðslu á tilskildum tíma og endurskoðaðan ársreikning skal vera búið að leggja fram fullgerðan, endurskoðaðan og tilbúinn til afgreiðslu eigi síðar en 15. apríl ár hvert. Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélags, stofnana sveitarfélaga og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert, eins og segir í sveitarstjórnarlögunum.

Sömu reglur virðast ekki gilda um ríkið og gilda um sveitarfélög. Ríkisreikning skal birta innan sex mánaða frá árslokum en síðan eru engin takmörk fyrir því hvenær hann skuli staðfestur. Aðeins er krafa um að ráðherra skuli leggja fram frumvarp um staðfestingu ríkisreiknings. Núna er það í febrúar árið 2022, fyrir reikningsárið 2020. Því til viðbótar eru ákveðnir hlutar ríkisreiknings ekki endurskoðaðir. Þess vegna er ekki hægt að segja með fullri vissu að reikningurinn sé rétt fram settur. Settar eru kvaðir á fyrirtæki, stofnanir og ýmsa rekstraraðila um framsetningu endurskoðaðra ársreikninga, samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilum, en um þann aðila sem setur lögin virðast sömu reglur ekki gilda.

Virðulegur forseti. Ég myndi gjarnan vilja taka þátt í að leggja fram nefndarálit í þessu máli. En þar sem ég er aðeins áheyrnarfulltrúi í fjárlaganefnd tek ég undir og lýsi yfir stuðningi við fram komið álit minni hluta nefndarinnar sem sett er fram af fulltrúum Pírata, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins. Þar koma fram góðar ábendingar til úrbóta sem mér sýnist ekki vera vanþörf á. Það er í mínum huga sérstakt að leggja þennan reikning fram ári eftir að reikningsskilaári lauk svo ekki sé sterkar tekið til orða. Vonandi getur maður leyft sér að vera bjartsýnn um að við sjáum breytingar á þessu vinnulagi í framhaldinu.