staðfesting ríkisreiknings.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara ítarlega yfir það sem minni hlutinn hefur sent frá sér og þakka hv. þingmanni fyrir að hafa farið yfir áherslur okkar hér áðan. Mig langar til að tæpa á nokkrum atriðum í ljósi þess að núna erum við aðeins að fara yfir söguna. Ríkisreikningur og yfirferð hans kann að hljóma sem alveg ótrúlega þurrt fyrirbrigði og það er vissulega margt sem er mjög þurrt í þessu máli. En það er líka ýmislegt sem fær mann til að hugsa um hvernig hlutirnir gerast í ríkisrekstri. Það sem stóð kannski helst upp úr hjá mér var sú staðreynd að þær tvær stofnanir, eins og hv. þingmaður fór yfir og kemur fram í minnihlutaáliti, sem skiluðu mestum fjárfestingarafgangi á árinu 2020, Landspítalinn og Vegagerðin, fá athugasemdir frá ríkisendurskoðanda, annars vegar sé Landspítalinn ekki með innri endurskoðanda og hins vegar hafi verið ákveðið ólag, ef svo má segja, á uppgjörum Vegagerðarinnar. Ákveðnar tölur virðast ekki stemma miðað við það sem ríkisendurskoðandi hefði viljað sjá. Ég ætla nú ekki að fara út í tækniatriðin í því en þetta á að vekja okkur til umhugsunar vegna þess að þarna liggja stóru upphæðirnar.
Eins og hv. formaður fjárlaganefndar hefur farið yfir þá erum við í nefndinni núna að ræða þessi mál, fjárfestingarátök og þess háttar, og við vitum fyrir víst, okkur hefur verið sagt af fjármálaráðuneytinu að það er einhver hópur að störfum sem er að fara yfir fjárfestingar og fjárfestingarátök. Maður veltir fyrir sér hvort þetta sé tímabundin vinna eða eitthvað sem ætti að vera í gangi hverju sinni vegna þess að þetta eru ótrúlega háar upphæðir sem um ræðir. Ég vek sérstaklega athygli á þessu vegna þess að það er mjög margt sem er gert í ríkisrekstri í dag sem var ekkert gert áður og þess vegna er ýmislegt hér til bóta, til að mynda er aukin meðvitund um mikilvægi og eðli fjárfestinga. Nú er t.d. farið að gera upp í efnahagsreikning og skrá niður eignir ríkisins. Áður var það alltaf þannig að við töluðum í rauninni bara um fjárstreymi út úr ríkissjóði. Fjárlög eru þess eðlis að það er í rauninni sett samasemmerki á milli fjárfestingarútgjalda og rekstrarútgjalda, þegar þau eru samþykkt. Það var þannig áður í efnahagsreikningi þrátt fyrir að við vitum alveg að ríkisrekstur sé ekki sambærilegur fyrirtækjarekstri, hann er auðvitað allt annars eðlis. Fyrirtæki sem ekki fjárfesta í mörg ár en skila afgangi, allir fjárfestar vita að það er engin framtíð fyrir slíkt fyrirtæki. Það er ýmislegt sem hefur verið í ólagi, sérstaklega þegar kemur að fjárfestingum, sem hefur verið endurskoðað í gegnum árin. Þess vegna sat þessi staða svolítið í mér varðandi þessar fjárfestingarheimildir sem hafa legið ónýttar en eru að einhverju leyti að detta núna aftur inn. Ég nefni þetta í því samhengi líka að við erum að ræða um framtíðina í tengslum við lög um opinber fjármál og að það sé einhver fyrirsjáanleiki. Það er eitt að leggja fram fjármálaáætlun til lengri tíma á rekstrarhliðinni vegna þess að að einhverju leyti er stór hluti af rekstrarútgjöldum tiltölulega fyrirsjáanlegur. Kerfin okkar eru þung og stór, þau eru framreiknuð miðað við verðlag, og það er ýmislegt sem er í rauninni hægt að gefa sér þar. Nýting fjármuna er svo til sjálfsögð vegna þess að þetta eru útgreiðslur. Fjárfestingar eru ekki þess eðlis. Þær geta verið tilfallandi, það geta hlutir komið upp á. Það sem er kannski verst við hefðbundna framsetningu eins og hún er í fjárlögunum er að það verður ákveðin hræðsla við að ráðast í stór fjárfestingarverkefni. Það er hræðsla við að allt í einu eitt árið komi brjálæðislegar halli á ríkissjóð og afkoman verði miklu verri en áður var talið. Það hefur t.d. komið fram að sögulega séð var hefðin sú að safna upp í fjárfestingar hjá ríkissjóði svo það væri hægt að reyna að breiða yfir miklar breytingar í útgjöldum. Þetta er vandamál vegna þess að við búum ekki við kerfi þar sem fjárfestingar geta alltaf verið bara jafnar í eðli sínu. Það koma upp hlutir en síðan á auðvitað að sinna viðhaldi jafnt og þétt.
Það sem ég tek frá þessu og mér finnst vera umhugsunarefni fyrir okkur í nefndinni, varðandi það hvernig við vinnum ekki bara út þetta ár heldur líka út kjörtímabilið, er hvernig við horfum almennt til fjárfestinga og hvernig farið er með þær í ríkisrekstri. Er einhver ástæðu til að draga frekar úr, eins og ég nefndi hér í andsvari við hv. formann fjárlaganefndar, fjárfestingum þegar kemur að afkomu- og skuldareglum en líka bara í meðförum fjárlaga? Eigum við horfa öðruvísi á fjárfestingarútgjöld en rekstrarútgjöld? Við vitum að t.d. skuldasöfnun sem fylgir fjárfestingarútgjöldum er auðvitað allt annars eðlis en rekstrarútgjöld. Ég nefni í því samhengi það sem hefur líka vakið athygli hjá mér, að eins mikið og lagt er upp úr gegnsæi og fyrirsjáanleika og þess háttar í lögum um opinber fjármál þá hefur líka komið fram á nefndarfundum, eftir að spurt hefur verið út í t.d. greiningar á útgjöldum og þess háttar, að það virðast ekki neinar næmnigreiningar hafa vera gerðar á útgjöldum ríkissjóðs. Ég segi þetta sérstaklega vegna þess að það fer rosalega mikið fyrir umræðu um þenslu og verðbólgu og hvað hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á hagkerfi. Það sem skiptir í rauninni máli í ríkisrekstri og umsvifum er þensla, það er verðbólga, þau áhrif hverju sinni. Það er ekki endilega nákvæmlega hver afkoman er eitt og eitt ár. Þetta er eitthvað sem ég myndi vilja sjá breytast í lögum um opinber fjármál. Þetta árið hefði verið áhugavert að sjá ákveðnar næmnigreiningar á þessu.
Þetta eru þeir punktar sem sátu í mér eftir lestur á ríkisreikningi, þessar stóru upphæðir sem eru í fjárfestingunni og hvernig fjárheimildir færast á milli ára. Þrátt fyrir við séum hér inni að taka pólitískar ákvarðanir og það er auðvitað ekki hægt að straumlínulaga allt — lög um opinber fjármál reyna að gera það upp að einhverju marki — það þarf líka af og til að taka pólitískar ákvarðanir og þær einkennast oft, þegar kemur að fjárfestingum, af mjög stórum upphæðum. Ég held að það sé mikilvægt að fjárlaganefnd taki það til skoðunar núna á kjörtímabilinu hvernig við getum aðeins breytt fyrirkomulagi vinnunnar og mögulega lögum um opinber fjármál til að taka mið af þessum eðlilega veruleika.